Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Qupperneq 10
HEIMILISVINURINN
xo
honum gengu svo hræðilegar sögur, að engin
mannleg vera þorði að koma þar nærri.
Þá var það, að konungur einn voldugur heyrði
þessar ósögur. Hann varð altekinn af löngun eftir
að sækja heim helgistaðinn, og sendi prest á und-
an sér, er skyldi greiða honum veg. En er prest-
ur kom þar, þá brá honum heldur í brún, er alt
var horfið, frumskógur og helgidómur og hvað
annað, og ekki annað en eyðisand yfir að líta.
Koriungur tók sér þetta mjög nærri, því hann
hugði, að þetta hefði verið gjört til að refsa hon-
um fyrir forvitni hans; hann bar því sífeldan ótta
fyrir reiði guðsins og tók að dýrka hann og fsera
honum fórnir. En guðinum þóknaðist svo vel
þessi tilbeiðsla, . að hann birtist. konunginum og
skipaði honum að byggja sér nýtt musteri, en hét
því um leið, að yfirsmiður guðanna sjálfra skyldi
koma til að gjöra nýtt. líkneski af guðinum '
stað þess, er hvarf.
Yfirsmiðurinn kom og tók til starfa. Efni-
viðurinn var stofn af Nim-trénu; guðinn Krishr>a
(ein af myndum þeim, sem guðinn Yishnú birtist
í og alþýðunni er kærust) hafði verið drepinn undii'
því tré af veiðimanni; hafði það tré rekið þar að
landi á undursamlegan hátt.
Yflrsmiðurinn lýsti því þegar yfir, að ef ein-
hver ónáðaði sig, eða sæi líkneski hans, fyr 611
því væri lokið, þá myndi hann ganga frá því og
ekki ljúka við það. En konungurinn var íorvitinn,