Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Side 18
HEIMILISVINURINN
li
trúaður Indverji ber traust til. Musterið er bygt
á þessum heilaga stað og miljónir pílagríma sækjí1
pangað á ári hverju, því Ram er eftirlætisgoð Ind-
verja. Það var liðið ár, áður en Chundra Lela
fengi komist til þessa helgistaðar; dvaldi hún þar
í tíu daga, til að bera bænir sinar fram fyrú'
Ram. Þar rétti hún líka Bramaprestum mat að
veizlu, er hún hólt, og gaf þeim kú, er skyldi gefa
næga mjólk handa Bamanath, guðinum. Þar að
auki keypti hún mynd af lionum, sem hún hafði
með sér á öllum sínum pílagrímsferðum, því að
hann var sá guðinn, er hún sérstaklega kaus sér
að dýrka.
Og svo hélt hún enn áfram pílagrímsgöng»
sinni, svo þreytandi sem hún var. Altaf hafði hún
rósalindann milli handa sér; hún dýrkaði með blindri
og vandlátri hjátrú þá guði, sem hún þekti.
Þrautirnar á pílagríuisferðinni.
Það var afarerfitt og þreytandi að ferðast uni
þessar mundir, en ekkert gat aftrað Chundra Lela
frá því, að framkvæma áform sitt. Þess vegn»
fór hún dagfari og náttfari frá einum stað til ann-
ars, L1 þess að sækja heim hið þriðja nafnfræga
musteri. Það heitir Dwarakanath og er yzt 1
vestri á Indlandi. Dwaraha (borgin með hliðununi)
stendur á strönd nessins Kathiawad. Helgibækur
Indverja segja, að guðinn Krishna hafi bygt borg'
ina. í kringum hana eru háir múrar tii varnar-