Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Qupperneq 22
22
HEIMILISVINURINN
henni þar fastri, því hárið var mikið og flókið.
Þar hélt hann henni fanginni um hríð, þar til er
einn dropi fékk leyfi að detta niður á fjallið; upp
úr þeim dropa spratt svo heimsins helgasta fljót,
sem miljónir Indverja sækja heim, til að þvo af
sér syndir sínar í vatninu. Það, sem einkum dregur
menn til Hardwar, er laugin þar og musterið, sem
þar til heyrir. Spor eftir guðinn Vishnu sézt á
steini í veggnum við laugina; þeim steini er sýnd
sérstök lotning. Margur pilagrímur verður troðinn
undir fótum til bana, þegar hann er að keppa við
að verða fyrri til en aðrir að komast þangað og
steypa sér í vatnið. Það er því nauðsynlegt að
hafa lögreglulið við hendina, því annars myndi
miklu fleiri kremjast eða verða troðnir til bana.
Fyrsti dagurinn í ári Indverja er sá dagur, er þeir
ætla, að Ganges-fljótið hafi fyrst komið í ijós á
jarðríki. Eins og eðlilegt er, þá safnast múgur
manns saman í Hardwar á þeim degi. Chundra
Lela laugaði sig þarna, eins og aðrir; en svo mik-
ið sá hún þar af þjáningum og volæði hjá píla-
grímum, að nærri lá að þessari ástríku konu féll-
ist hugur, svo hugdjörf sem hún var að eðlisfari-
Nú lagði hún af stað áleiðis til Kashnúr. A
leiðinni sótti hún heim alla staði, sem helgar sagnir
gengu af; baðst hún fyrir í hverjum helgidómi og
veitti Bramaprestum, hvar sem hún kom. Þaðan
sneri hún svo aftur á leið til Multra; þar leitaði
hún uppi staðinn, þar sem helgu bækurnar segja>