Muninn - 01.04.1965, Qupperneq 26
<Bré/ frá Laugarvatni
Laugarvatni 5. apríl 1965.
Töluverð grózka hefur verið í félagslíli
ML síðustu mánuðina. Hal’a verið haldnir
dansleikir hvern laugardag, en á þeim njót-
um við góðs af því, að hér á staðnum eru 4
heimavistarskólar, því að dansleik aðeins
fyrir nemendur Menntaskólans væri varla
hægt að kalla því nafni. Er haldinn annan
hvern laugardag dansleikur fyrir alla skól-
ana, í Menntaskólanum og Héraðsskólan-
um til skiptis, en hinn fyrir Menntaskól-
ann, Húsmæðraskólann og íþróttakennara-
skólann. Á sunnudagskvöldunum hafa ver-
ið haldnar kvöldvökur, spilakvöld o. fl., en
á miðvikudagskvöldunum sýndar kvik-
myndir.
Fyrir skömrnu tók skemmtinefnd upp á
því, að hal’a spurningakeppni milli bekkja,
í svipuðum stíl og spurningakeppni skóla-
nema í Ríkisútvarpinu sl. ár, og gerðu
kennararnir spurningarnar og skipuðu auk
þess dómnefndina. Þessari keppni lauk með
sigri 4. bekkjar, eftir liarða keppni við 2.
bekk (4. b. = 6. b. í MA og Mr, og 2. b.
= 4. b.).
Hið menningarlega hefur þó ekki farið
varhluta af félagslífi okkar þrátt fyrir
skemmtanirnar. Hið svokallaða töflublað
(þ. e. a. s. að það er aðeins hent upp á aug-
lýsingatöflu skólans) hefur komið út þrisv-
ar síðan á áramótum, og birt ýmis ritverk
nemenda. Skólablaðið, sem kemur út tvisv-
ar á ári, hefur ekki enn komið út í seinna
skiptið, en mun að öllum líkindum koma
út í þessari viku.
Listfræðslunefnd hefur ekki látið sitt eft-
ir liggja, en haldið tvær málverkasýningar
á verkum nemenda skólans. Hún fékk einn-
ig hingað fyrir skömmu ágætan gest, Guð-
mund Jónsson óperusöngvara til þess að
skemmta okkur, enda var honum vel fagn-
að.
Þrír málfundir hafa verið haldnir síðan
á áramótum, um íþróttir, stóriðjumál og
trúmál. Á þeim síðastnefnda var prestur
staðarins einn af framsöguræðumönnum.
Háir það nokkuð málfundum okkar live
fáir taka til máls, og koma sömu ræðumenn
upp aftur og aftur.
Íþróttalífið er nokkuð fjörugt hér, og ber
körfuboltann þar lang hæst, enda líður
varla hér sá laugardagur, að ekki sé haldið
körfuboltamót. Um frjálsar Jrróttir innan
liúss hefur verið nokkuð og eitt mót hald-
ið, en utan húss hefur verið lítið um þær
enn sem komið er.
Nú er vorið að koma, og eru sportidiót-
arnir því larnir að stunda fótbolta af kappi,
enda hefur veður verið mjög gott undan-
farið. Er hin mikla fótboltaiðkun nem-
enda hér orðin nærri Jrví eins óbrigðult
merki vorkomunnar og lóan.
Eg vil nú enda Jrennan pistil minn með
því að óska öllum nemendum MA gæfu
og gengis með kveðju frá kollegum Jreirra
á Laugarvatni.
Kr. E. Guðm.
134 MUNINN