Muninn

Volume

Muninn - 01.04.1966, Page 7

Muninn - 01.04.1966, Page 7
ar sem skuggarnir dansa Veizt þú, hvað það ér að vera myrkfælinn? Veíztu, livað það er að sjá hvern skugga teygja blóðugar klærnar í átt til þín, hrista lraman í þig kjúkurnar, grípa um liáls þér, svo að augun standa á stilkum, nísta hold- iausum fingrum að kverkum þínum, þang- að til bein sker bein? Veiztu, hvað það er að finna dökk trén við stíginn hvelfast yfir þig, færast nær í sífellu með óménnsku hljóði, reyna að loka þig inni í svörtu gapi, þar sem hvert horn, hvert skot hlær brjáluðum hæðnishlátri, unz þú tryllist, baðar út hönd- unum, nístir saman augunum og öskrar, öskrar hærra en allt hitt til samans og hverf- ur inn í þessa vitskertu hringiðu? Allt þetta þekkti hann, og hann hafði oft fundið þessa lamandi tilfinningu, sem gagn- tekur myrkfælinn mann, þegar hans eigið skóhljóð bergmálar á auðu stræti, eðá þegar stóru eikarnar í skóginum kasta því á milli sín eins og hvert tré sendi frá sér hvíslandi draug, sem allir stefna að sama marki, hon- um sjálfum. Það vissi enginn, af hverju hann var svona myrkfælinn, ekki einu sinni hann sjálfur. Faðir hans, sem var skógarvörður, lézt þeg- ár drerigurinn var aðeins þriggja ára, og síðan hafði hann alizt upp hjá móður sinni, leikið sér í skóginum á daginn, en strax og rökkrið fór að læðast að rótum trjánna, hljóp hann inn, hjúfraði sig að móður sinni og starði kvíðafullur til dyranna, eins og hann óttaðist, að eitthvað ógnandi biði úti lyrir. Þegar liann stækkaði varð þetta hræði- leg kvöl. Móðir hans strauk honum blíðleoa yfir hárið og reyndi að hugga hann, en það gekk ekki, og næstum hverja nótt grét hann sig í svefn, eftir að liafa hjúfrað sig undir sængina, gripið dauðahaldi í hana og reynt að byrgjá sérhverja smugu. Svo þurfti hann að fara að vinna. Hann var laghentur, og það var smiður í útjaðri borgarinnar, sem gjarnan vildi hafa þeririan þögla pilt. F.n þegar dimmdi, kveikti pilt- urinn öll ljós á verkstæðinu, svo smiðrium, senr var sparsamur, þótti nóg um. Hann lann að þessu, en Joá leit pilturinn á hann með svo heitri bæn í augnaráðinu, að gamli maðurinn hristi einungis höfuðið, gekk burt og lét ljósin loga. En úti var allt dimmt, og þegar hann gekk heim á kvöld-- in, voru svartir gluggarnir eins og augna- tól'tir, sem seiddu hann til sín og hann tróð höndunum í vasa og kreppti fingurna inn í lófann, svo neglurnar skárust inn í Iiold hans og liann varð að bíta á vörina til að stilla sig um að æpa. Húsið þeirra stóð rétt utan við borgina. Vegurinn þangað var stuttur, en hann var líka mjór, einungis höggvinn skógarstígur, vaxinn trjám á l)áða vegu. Hann var um fimm hundruð rnetra langur, en í augum j)i 1 tsins var liann heil eilífð. Með dynjandi hjartslætti hljcp hann þennan síðasta spöl, tárin stóðu í barnslegum augum hans, og Itann heyrði hvernig sífellt fjölgaði óvætt- unum fyrir aftan hann, hvernig þeir nálg- uðust meir og meir, þar til hann þoldi það ekki lengur, en sneri sér grátandi við í von- lausri uppgjöf, þá bráði af honum. Hann kom oft grátbólginn heim, og honum fannst það minnkun, en móðir lians tók í hönd hans og talaði blíðlega til hans, unz lijarta hans hætti að berjast eins ótt og títt og svit- inn perlaði ekki lengur á enni hans. En hann þoldi ekki til lengdar þessa spennu, hann fór að drekka, og drakk þar til hann var nær rænulaus, þá liélt hann lieimleiðis svo deyfður, að öll utanaðkom- aridi áhrif vorn framandi og skiptu liann MUiNINN 115

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.