Muninn - 01.04.1966, Blaðsíða 30
búast við, að komur fyrirlesara í skólann
aukist mjög næsta vetur. Ég hygg, að þetta
sé heppileg þróun, en henni fylgir sú hætta,
að nemendur velti ábyrgðinni í félagsstarf-
seminni í skólanum á utanaðkomandi öfl.
Gegn þessari liættu ber nemendum að vera
vel á verði. Starfsemi Hugins byggist fyrst
og fremst á nemendunum sjálfum, og hún
sýnir þroska þeirra i hnotskurn.
I vetur var efnt ti 1 félagsmálanámskeiða,
eins og tvo undanfarna vetur. I samræmi
við þá reynslu, sem fengizt hefur af þessari
starfsemi, efast ég um, að heppilegt sé að
efna til slíkra námskeiða á hverjum vetri,
þó að reyna megi nýjar aðferðir á komandi
vetri, því að rúmur fjárhagur opnar áður
ófærar leiðir í þessu efni. Ætlunin var í
vetur að kanna, hvort ekki mætti hafa gagn
af tveim bæklingum um ræðumennsku og
fundarsköp, sem félagið hafði aflað sér. Sú
tilraun gat ekki farið fram, vegna þess að
þátttaka var svo léleg, að ekki voru haldnir
nerna þrír fundir á námskeiðinu. Verst þyk-
ir mér, að þátttaka í neðri bekkjum skólans
var slærn, og lofar það ekki góðu um reisn
félagsstarfsins, þegar þessir bekkir eiga að
hafa þar forystu. Vonandi rætist þessi spá
ekki, og sízt allra harmaði ég það.
Starfsemi undirdeilda Hugins hefur ver-
ið allgóð í vetur, og hef ég þegar getið henn-
ar að nokkru. Tónlistardeild hel'ur unnið
meiri hylli, en venja hefur verið á undan-
förnum vetrum. Bókasafnsnefnd hefur unn-
ið mikið starf. Starf, sem ekki er alltaf met-
ið, senr skyldi. Næsta vetur verður bóka-
safnið opnað í nýjum húsakynnum. Ég ætla
ekki að rifja liér upp raunasögu bókasafns
M.A. á liðnum árum, en fagna því, að lang-
varandi draumur okkar nemenda M.A. er
að verða veruleiki, því að „betra er seint en
aldrei." Bókmenntakynningardeild hefur
starfað vel, þó að starfsemi Iiennar verði að
styrkja meir fjárhagslega, en gert hefur ver-
ið. Á starfi Raunvísindadeildar hef éa ekki
mikið vit, en starfsemi hennar í vetur hef-
ur ekki verið of lyrirferðarmikil.
Aðalfundur Hugins var nýlega haldinn
og markaði hann gæfuspor í sögu félagsins.
Ber þar hæst hina miklu hækkun félags-
gjaldsins, sem samþykkt var nærri sam-
hljóða, en tilvonandi forystumenn Hugins
skulu gera sér grein fyrir því, að á næsta
vetri verða gerðar til þeirra rneiri kröfur
en nokkru sinni fyrr. Á herðum þeirra hvíl-
ir mikil ábyrgð, en ég vona, að þeir megni
að lyfta merki Hugins, skólafélags M. A.,
hátt á loft.
Vegna þess að ég læt brátt af formanns-
störfum í Hugin, vil ég þakka öllum, sem
stutt hafa starfsemi þess í vetur. Þar mætti
tilgreina mörg nöfn, en það verður ekki
gert hér. Að endingu. Ég veit, að enginn,
sem hefur vilja til þess að vinna að eflingu
heilbrigðs félagslífs í skólanum, sér eftir
þeim tíma, er í það fer, vegna þess að á með-
an við dveljum hér í skólanum, eru allt i
kringum okkur tœkifœri til þess að verða
hœfari að leysa þau verkefni, sem krefjast
úrlausnar okkar á komandi árum. Tœkifæri,
sem koma ekki aftur og við megum þess
vegna ekki í hugsunarleysi glata.
Lokið á ísafirði í byrjun apríl.
Svanur Kristjánsson.
Islenzka i 4. mb:
Árni Kr.: „Hvað er átt við með þessu:
En vit vín eitt Óðinn æ lifir?“
Ingvar Karlsson: ,,Að Óðinn hafi drukk-
ið eintómt vín.“
Árni: „Viltu þá halda, að Óðinn hafi
drukkið það dry}“
Saga í 4. ma:
Guðrún K.: „Hellenar komu aðallega frá
Asíu.“
138 MUNINN