Muninn

Årgang

Muninn - 01.04.1966, Side 8

Muninn - 01.04.1966, Side 8
engu, hann var óttalaus á meðan. Eftir það kom hann oft drukkinn heim, og á hverju kvöldi tók móðir hans á móti honum, hátt- aði hann ofan í rúm og grét við rúmstokk hans, ekki vegna vínsins, sem var honum einungis blessun, heldur þau örlög, sem dæmt höfðu einkason hennar í þessa ógæfu. Á hverjum morgni hét liann að bragða aldrei vín, á hverju kvöldi kom hann drukk- inn heim. Hann reyndi og reyndi, en nteð myrkrinu kom alltaf þessi þrúgandi ótti, sem ekkert virtist geta hamið og rak hann miskunnarlaust til vínsins. Hann drakk aldrei með vinum sínum, þegar þeir fóru út að skemmta sér, en þegar Jreir tóku að tínast burt og hann var einn eftir, greip hann til vínsins og drakk sem óður væri. Dagarnir liðu, móðir hans varð sífellt veiklulegri. Þetta var henni of þung byrði. Hann skildi það, og dag einn hét hann henni hátíðlega að bragða ekki vín framar, og hann stóð við J:>að. En dagarnir urðu kvalafidl bið eftir því ókunna, sem hann óttaðist svo mjög. Hann hugsaði vart um annað en myrkrið, dimm strætin, dansandi skuggana í skóginum, um holt, draugalegt hljóðið, þegar vindurinn Jruit milli grein- anna og gamla hiiðið, sent ískraði eins og dauðahrygla kafnandi rnanns. Það sótti því að honum ótti, þegar hann var beðinn eitt sinn að skila glerlampa, sem verið hafði í viðgerð; tekið var að halla degi, en hann lét ekki á neinu bera og hélt af stað. Leiðin var löng, myrkrið jókst í sí- fellu, lagðist þrúgandi yfir liann og virtist ætla að gleypa hann. Hann leit bænaraug- um til beggja hliða, alls staðar autt, aðeins dimm skot og draugalegar gluggaborur. Hjarta hans barðist, liann fann, hvernig tár- in þrengdu sér fram í augu hans og kökkur- inn stóð fastur í liálsi hans. Hendurnar skulfu, hann heyrði ískra í ryðguðúm læs- ingum og marra í tröppum. Hann leit flóttalega í kringum sig, — ekkert, — en sí- fellt magnaðist dynjandin fyrir eyrum hans, varð eins og holskefla, sem skall yfir hann. Hann átti aðeins eftir að beygja fyrir eitt horn, og þá var hann kominn. Hann reyndi að stilla sig, en gat það ekki og tók á sprett, ég verð, ég verð. Hann nálgaðist liornið, beygði fyrir það, en lirökk við og snarstanz- aði. Beint á móti honum í rökkrinu við vegginn sá hann standa veru, litla óhrjá- lega veru, sem starði á hann. Hann ætlaði að æpa og hlaupa burt, en áttaði sig svo. Þetta var bara smábarn, lítil telpa, sem hall- aði sér upp að veggnum og grét. Hann lok- aði augunum, nreðan léttirinn fór um hann eins og flóðalda. Þegar hann opnaði Jrau aftur, var telpan hætt að gráta. Hún horfði á hann stórum augum og snökti lítilshátt- ar. „Ég er svo hrædd“. „Ertu hrædd, við livað ertu hrædd?“ — ,,Ég er svo hrædd við myrkrið, og ég rata ekki heim“. — Hann settist á gangstéttina við lilið hennar og reyndi að finna einhver huggunarorð. „Þú þarft ekki að vera hrædd við myrkrið. Myrkrið er bara ábreiða, sem guð breiðir yfir jörðina svo að við getum sofið. F.f allt- af væri ljós, gætum við ekkert sofið og vær- um alltaf syfjuð“. Hann brosti við henni: „Sjáðu þennan litla glngga. Hann er svart- ur. En bak við hann er nóg ljós og fólk eins og við. Hvernig getur nokkuð illt búið í myrkrinu?“ Meðan hann var að tala, hætti stúlkan að snökta. Hann fann, hvern- ig ótti hennar rénaði, en hann fann líka, hvernig hans eigin ótti hvarf, hvernig hann virtist vakna af martröð; það var sem hula væri dregin frá sjónum hans og hann sæi inn í nýja veröld, veröld, þar sem ljós og myrkur eru einungis tvær andstæður, en báðar góðar og nauðsynlegar. Hann leit á telpuna. Hún brosti við honum. „Við skul- um koma heim. Hvar áttu heima, vina mín?“ Þegar hann kom heim, var móðir hans sofnuð. Hann læddist út aftur og þegar hann opnaði dyrnar, flæddi myrkrið á móti Framhald á blaðsíðu 123. 116 MUNINN

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.