Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1966, Síða 11

Muninn - 01.04.1966, Síða 11
til að lesa heima og taka yfirlitspróf að þeim undirbúriingstíma liðnum. Það mætti setja fyrir kafla í samhengi og raða lestrarefninu öðruvísi en gert er í bókunum. Að þessu lestrartímabili loknu, á undan eða eftir prófinu, ætti kennarinn að halda yfirlits- fyrirlestur um efnið fyrir stóran hóp í einu. Hann ætti þá að tengja atburðina saman, skýra orsök og afleiðingu þeirra, leiða í Ijós megindrættina og rekja þráðinn. Þá væri tilvalið að hafa tvo sögutíma í viku, í hverjum kennarinn héldi smá tölu og skýrði ýtarlega einhver atriði í sögunni, talaði um einhvern merkismann, greindi rækilega frá hinum ýrnsu stefnum, viðhorfum, bók- menntum og listum eða einhverjum þeim atburði í sögunni, sem væri þess verður að staldra við hann. Eg er sannfærður um, að þetta væri miklu betri söguundirbúningur heldur en við nú fáum. Nemendur myndu lesa söguna í meira santhengi, tengja at- burðina betur og fá miklu betra yfirlit yfir atburðarásina. Nú leggja nemendnr á sig einstök, sundurlaus atriði og ártöl til þess að geta svarað út úr á prófi og missa þann- ig heildarsýn á sögunni. Með þessu fengist ekki síðri vitneskja um kunnáttu nemenda, því að tímaupptökur eru mjög tilviljun háðar. Einnig skapaðist nokkurt rúm fyrir námsgreinar, sem líða fyrir tímaskort. Þá vantar fræðslu í félagsfræði í skólanum og ætti að bæta henni við sögunámið. Stærðfræðigi'einarnar líða mest og verst fyrir tímaskort og er það mjög alvarlegt. Úr því mætti e. t. v. bæta með því að sam- eina meir heimavinnu og tímakennslu og minnka þannig tvítekninguna. Ohætt væri að lengja skólasetuna á daginn og láta nem- endur vinna rneir í skólnum undir leiðsögn kennara. Þá þyrlti væntanlega ekki að fara aftur í efnið og heimavinna mundi minnka til numa. Þá rnætti gera þessar greinar líf- legri og hugtækari með því að skjóta inn viðbótum um sögu stærðfræðinnar og þró- un og skýra meir þýðingu einstakra atriða og lögmála. Annars held ég, að dagsverk nemenda sé yfirleitt alltof fjölþætt og námið því mjög sundurslitið. Einnig vantar meiri sjálfstæða vinnu, því „menntunin verður ei heil né hálf, ef liugsið þið eigi og skapið sjálf, hve margt, sem þið lesið og lærið,“ eins og skáld eitt hefur réttilega bent á. Ef til vill hef ég sum staðar verið ósann- gjarn í dómum mínum og sett fram hálf- gerðar „útópíu“ hugmyndir, en ég bið samt alla vel að virða þennan umbótavilja og lykta hér máli mínu. Guðmundur Pétursson. Skrítlur Danska i 4. ma: Jón Margeirson: „Hefur ekki heppnast vel að hafa þessi mánaðarfrí?" Náttúrufrœði i 4. mb: Sverrir Páll stendur upp í miðjum tíma til að loka glugganum. Steindór: „Er þér kalt, garmurinn?" Sverrir: „Já.“ Steindór: „Já, það er svona með þessa ltoldgTÖnnu menn. Þeir þola engan kulda.“ Saga i 3. c: Steindór: „Þið farið allir saman til fjand- ans.“ Rödd úr bekknum: „Þú færð þá ekki ómerkilega samfylgd.“ íslenzka i 4. ma: Verið er að ræða um orðið ballr, heyrist þá hlátur mikill aftur í bekk. Árni Kristjánsson: „Ég heyri, að nú hef- ur einhverri dottið eitthvað Ijótt í hug.“ MUNINN 1 1 9

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.