Muninn

Årgang

Muninn - 01.04.1966, Side 14

Muninn - 01.04.1966, Side 14
á myndfleti. Næstu daga sýndi hann og út- skýrði fyrir nemendum allmörg verk ís- lenzkra málara. Bjiirn var hér á vegum List- kynningar í skólurn, og þótti liann liinn ágætasti gestur. Laugardagskvöldið 5. marz liéldu fjórðu- bekkingar dansleik á Sal og frumfluttu óperettuna „Ein nótt og tveir dagar“. Ekki voru viðbrögð allra jákvæð við því verki. Næsta vika var kristniboðsvika. Föstu- daginn 11. marz flutti séra Ingólfur Guð- mundsson erindi í setustofunni um efnið „Er kristindómurinn lífslygi?“ Að því loknu varði klerkur skoðanir sínar lyrir spurulum trúleysingjalýð. Þótti ýmsum þetta hin bezta skemmtun. Daginn eftir flutti Þórð- ur Möller, yfirlæknir á Kleppi, erindi trú- arlegs efnis á Sal. Gerðust fáir til að skilja mál lians, hvað sem því hefur valdið. Sunnudaginn 13. endurguldu hinar blóm- legu Laugalandsmeyjar heimsókn mennt- skælinga fyrr í vetur. A mánudag var hringt á Sal og gaf skóla- meistari þar frí daginn eftir. Síðan var far- ið í tíma. Um kvöldið liélt hinn fjárþurfi fimmti bekkur að sjálfsögðu dansleik á K.E.A. — Mánaðarfríið var notað til Út- garðsgöngu, en hún var síðast þreytt 1961. Að göngu þessari er vikið á öðrum stað í blaðinu. Föstudaginn 18. marz var nrælskukeppni í setustofunni á vegum Hugins. Sigurveg- ari varð Höskuldur Þráinsson, og ennfrem- ur hlaut Svanur Kristjánsson að verðlaun- um bók, áritaða af sjálfunr sér. Laugardaginn 26. konru lringað leikarar Herranætur M.R. og sýndu leikrit sitt „Bunbury" eftir Oscar Wilde. Var það lrin ágætasta sýning. Mánudaginn 29. nrarz var í setustofunni málfundur unr félagsnrál. Franrsögu hafði Höskuldur Þráinsson og leysti það verkefni prýðisvel af hendi. Fundurinn var líflegur og fjörugur, enda undir styrkri stjórn kunnrar félagsmálahetju. A þriðjudag kom lringað norður á veg- unr Hugins Sigurður A. Magnússon rithöf- undur, og var því haldin bókmenntakynn- ing í setustofunni um kvöldið. Flutti hann þar erindi um gríska 1 jóðskáldið Gíorgis Seferis, og síðan var lesið úr ljóðunr skálds- ins í þýðingu Sigurðar. Aðalfundur Hugins var lraldinn á Sal daginn eftir. Að þessu sinni var sjálfkjörið í öll helztu embætti, og ber það félagsnrála- áhuganum í skólanum glöggt vitni. ddafði Jón Baldvinsson verið valinn fornraður Hugins og Jósep Blöndal ritstjóri Munins fyrir næsta vetur. Framhaldsaðalfundur var svo á föstudagskvöld í setustofunni, þar eð ekki vannst tími til að ljúka fundarstörfum. Þess má geta, að á fundi þessunr voru af- greiddar gagnmerkar tillögur ýnrissa álruga- nranna unr félagsnrál til breytinga á lögunr Hugins. Því miður voru tillögur þessar felldar. Laugardaginn 2. apríl var síðasta sýning Borgarfilmunnar á vetrinum. Sýnd var myndin „Becket“, eir auk þess dregið um happdrættisvinninga. Unr kvöldið lrélt 3. bekknr hlöðuball á Sal. Aðsókn var sænri- leg, og skreytingar allar hinar snrekklegustu af lrendi bekkjarins. 122 MUNINN

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.