Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.04.1966, Qupperneq 21

Muninn - 01.04.1966, Qupperneq 21
þú vitir það ekki, og ég skal einhverntím- ann finna hann fyrir þig.“ ,,Svo hélt hann áfram að mála, og ég horfði á, hvernig hann málaði lit yfir ann- an lit, svoað úr því varð kvöldroði, og hvern- ig hann bjó til tindinn hinumegin. En mér blöskraði; hann var grænn. Ég gat ekki orða bundizt. „Afhverju gerirðu tindinn grænan?“ „Afþvíað hann er fallegii grænn. Mínir tindar eru alltaf grænir.“ „En tindurinn er blár.“ „Hvernig veizt þú það?“ „Nú, ég veit það.“ „Hvernig geturðu verið viss um það, sem þú sérð, að það sé einsog þú sérð það?“ Ég var dolfallin. Aldrei hafði ég vitað mann bera brigður á það, sem hann sá. Svo hló hann og sagði, að tindurinn væri grænn, afþvíað það færi vel við litina í kring, og að það væri ekkert aðalatriði að mála hlutina einsog þeir eru, þá gætu menn bara skoðað þá sjálfir og þyrftu ekki mynd- ir. Ég fór heim aftur, öðruvísi en ég var áð- ur. Þessi maður hafði einsog laumað litl- um eldneista undir stólpann, sem hélt uppi allri minni heimsmynd, ég var á nálum um að það kviknaði í út frá þessum neista, og Jrorði ekki fyrir mitt litla líf að koma ná- lægt málaranum, hann gæti kannski gert mig skrítna, ég hafði heyrt fólkið segja, að hann væri eitthvað skrítinn, og J:>að gat vel verið smitandi. Maðurinn frá útlandinu hélt áfram að mála, hann bar grindverkið sitt út um allar trissur og lifði fyrir verkið eitt. Ég liorfði á hann í laumi, og hugsaði með hryllingi; ni'i er hann að mála hólinn rauðan, og Skjóna gamla bröndóttan, kannski hann hafi lambaspörðin gyllt. En loks stóðst ég ekki það ójDekkta og fór upp á hól, þarsem hann stóð og skoðaði myndina sína álengdar. Ég var nri svo borubrött, að ég gekk alveg til hans og skoðaði myndina. Ég varð fyrir vonbrigðum, þar voru engin gyllt lamba- spörð. Myndin var af fossinum nppfrá, og klettinum fyrir framan. „Þetta er falleg mynd,“ sagði ég. „Nei, Jrað vantar eitthvað í hana. Það væri gott, ef þú vildir fara og setjast á klett- inn þarna, svo að ég gæti málað Jrig. Ég bráðnaði. Svo settist ég á klettinn, hann sýndi mér, hvernig ég ætti að sitja, og svo málaði hann mig, hratt, en fumlaust, leit til mín öðru hvoru og hallaði undir flatt. Og áður en ég skildi almennilega, að ég, sveitastelpan, sat hér uppi á kletti fyrir útlenzkan mál- ara, og hann var að gera mynd af mér og engri annarri, var hann búinn, og sagði mér að koma niður. „Má ég sjá? bað ég. „Nei, ekki ennþá. Hún er ekki búin. En hún verður góð.“ Svo fór ég heim. Strax daginn eftir sýndi hann mér mynd- ina. Hann hafði gert mig talsvert laglegri en ég var, og nú gat ég ekki áfellzt hann fyrir að breyta hlutunum. „Viltu mála aðra mynd af mér?“ stalst ég til að segja, áður en ég vissi. „Kannski," sagði hann. „Það væri ágætt að fá að mála mynd af þér uppi í skógi einhverntímann." Og Jnð skiptir engum orðum, — eftir nokkra daga fórum við uppí skóg. Hann setti upp grindverkið og léreftið. Ég beið eftir því, að hann segði mér, hvern- ig ég ætti að standa. Þá sagði hann Jrað. „Væri þér sama þótt þú færir úr fötun- um?“ Aíér krossbrá. Svo varð ég reið. Ég gat mér nú nærri, hvað hann ætlaði sér með j)ví að narra mig úr fötunum. Að mig skyldi ekki gruna þetta, þegar hann sagðist ætla með mig uppí skóg. muninn 129

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.