Muninn

Volume

Muninn - 01.04.1966, Page 25

Muninn - 01.04.1966, Page 25
brá f< ormanni Raunvísindadeildar Hugins Á málfundi nú fyrir skömmu varð ég fyrir því mikla óláni, að nokkrir andans útvaldir hér í skóla beindu raustum sínum gegn mér og samstarfsmönnum mínum í Raun- vísindadeild Hugins. Hefur Guðmundur Ólafsson þegar þvegið hendur sínar. Er nú komið að mér. Var ég að vísu ekki við- staddur þennan fund, en hef lieyrt, hvað helzt var skrafað. Formaður Hugins mun fyrstur hafa vak- ið rnáls á þessu, og beinist því svar mitt til hans. Hinir munu líklega aðeins vera afleið- ing hinnar sígildu setningar: „Ég er algjör- lega sannnála síðasta ræðumanni." Fyrir tveimur árum var Raunvísindafé- lag M.A. innlimað í Hugin, þar sem það hafði tvívegis áður fæðzt andvana vegna al- gjörs áhugaleysis nemenda. Með þessari breytingu varð formaður Hugins liæst-ráð- andi í stjórn deildarinnar, og verður hann því að teljast bera nokkra ábyrgð á stjórn hennar gagnvart nemendum, en formaður deildarinnar aftur gagnvart honum. Hefur formaður Hugins ekki gert sér grein fyrir því, að flest þau skeyti, er hann beindi að mér, standa í hans eigin baki. Hafi hann verið óánægður með starf deildarinnar í vetur, bar honum að koma til mín og leiða mig inn á rétta braut, en ég hef ekki átt því láni að fagna í vetur, að formaður Hug- ins ræddi við mig um málefni deildarinn- ar. Flitt er svo annað mál, hvort starf deild- arinnar hefur verið ófullnægjandi í vetur. Mitt álit hefur alltaf verið, að starf einhvers félags í skólanum ætti að rniðast við þann áhuga, sem ríkti í skólanum á því efni, er félagið fæst við. Eftir þessu áliti mínu hef ég stjórnað félaginu í vetur. Og hver maður verður að svara því sjálfur, hvort áhuga hans hefur verið svalað. Ég sé enga ástæðu til að geta að vori nefnt hreykinn einhverja ákveðna fundatölu, hafi áhugi nemenda sjálfra ekki verið grundvöllurinn, en áhug- inn mun aukast með tímanum og þá um leið starfsemi deildarinnar. Mér hefur skilizt, að fundarmönnum hafi helzt verið þyrnir í auga, að við hefðum ekki staðið við loforð þau, er gefin hefðu verið í grein, sem Guðmundur Ólafsson skrifaði í 1. tbl. Munins. Satt er það. Ekki hefur allt verið framkvæmt, sem þar stóð skrifað, enda einungis ætlað sem ábending um hugsanlega uppbyggingu starfseminn- ar. I greininni var ,,lofað“ kvikmyndasýningu með tilheyrandi skýringum. Staðið liefur verið við það. Minnzt var á sögufrægar til- raunir. Við slíkar tilraunir þarf ýmsan út- búnað, og gjörð var pöntun, sem ekki hef- ur enn verið afgreidd, en nú höfum við út- búnað í smíðinn sjálfir. Þá var drepið á stærðfræðikeppni. Þeirri keppni var konrið á, og skiluðu aðeins 7 einhverjum lausnum, þó að mörg dæmin væru vel viðráðanleg. Um bókakost deildarinnar er það að segja, að hann er svo lítill, að okkur fannst varla svara kostnaði að hlaupa með hann milli stofa, heldur kusum við að bíða eftir bóka- safninu, senr sífellt er væntanlegt. Þá er aðeins eitt atriði eftir úr þessari frægu grein, en það voru fyrirætlanir okk- ar að útvega fyrirlesara. Slíkt kostar pen- inga, og deildin hefur engin fjárráð. Eig- unr við því allt okkar undir Hugin. Hins vegar gat formaður Hugins þess réttilega, að við lrefðunr ekki leitað til hans nreð beiðni um styrk. Ástæðuna get ég vel til- Framhald á blaðsíðu 146. MUNINN 133

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.