Muninn

Årgang

Muninn - 01.04.1966, Side 36

Muninn - 01.04.1966, Side 36
IÞROTTASPJALL Enn líður að lokum langs vetrar. Nemend- ur skólans taka flestir að snúa sér óskiptir að náminu og freista þess að bæta nokkru við kunnáttu sína, eða öllu heldur reyna að klóra í bakkann. Dregur þá vissulega úr útlimagleði margra, en þó fá hörmungar prófa og lestrarannir naumast aftrað mönn- um að bregða sér út á völl til þess að sparka í bolta, eða á skíði. Nú á ofanverðum vetri hefur ærið margt verið aðhafzt á vettvangi íþrótta í M.A., sem vert er að gefa gaum. Handbolti. í febrúar og marz fór fram skólamót M.A. Var það haldið í Rafveituskemmunni. Eitt lið úr hverjum bekk tók þátt í mótinu, sem var skemmtilegt á köflum. Mjög var úrslita- leikurinn tvísýnn, en þar áttust við hinir fornu keppinautar 5. og 6. bekkur. Lauk leiknum með naumum sigri 5. b. Voru þeir vel að sigrinum komnir, þar sem jreir hafa æft vel í vetur. Beztan ein- stakling í mótinu tel ég Jakob Hafstein 6. b., sem átti frábæra leiki. Úrslit: 1) 5. bekkur 6 stig 2) 6. bekkur 4 stig 3) 4. bekkur 2 stig 4) 3. bekkur 0 stig. Akureyrarmótið sigraði Í.M.A. og sönn- uðu handknattleiksmenn ótvírætt, að hand- knattleikur hefur sjaldan eða aldrei risið jafn hátt sem nú í skólanum. Körjubolti. í síðari hluta marz lauk skólamótinu í körfu. 5 lið tóku þátt í því, eitt úr hverjum bekk nema tvö úr 4. bekk. Mótið sigruðu 6. bekkingar, og er það í þriðja árið í röð, sem jressir sömu piltar fara með sigur af hólmi. Liðið skipuðu: Jólrannes Gunnars- son, Kristófer Þorleifsson, Stefán Eggerts- son, Kjartan Guðjónsson, Bjarni G. Sveins- son, Jakob Hafstein og Arnar Einarsson. Frjálsar. Mikill fjörkippur hefur færzt í frjálsíþrótta- menn. Haldin hafa verið tvö innanhússmót livort öðru betra. Leikur enginn vafi á jrví, að í M.A. eru menn, sem skipa sér á bekk með beztu stökkvurum á landinu. Birtast hér helztu árangrar úr hinu síð- ara, sem var skólamót M.A. Langstökk án atrennu: 1. Guðmundur Pétursson 5. b. 3,19 m 2. Stefán Eggertsson 6. b. 3,14 m 3. Ríkharður Kristjánsson 6. b. 3,05 m 4. Höskuldur Þráinsson 6. b. 2,99 m Keppendur voru 13. Þristökk án atrennu: 1. Haukur Ingibergsson 5. b. 9,40 m 2. Stefán Eggertsson 6. b. 9,37 m 3. Höskuldur Þráinsson 6. b. 9,13 m 4. Guðmundur Pétursson 5. b. 9,03 m Keppendur 13. Flástökk án atrennu: 1. Haukur Ingibergsson 5. b. 1,50 m 2. Jóhann Gunnarsson 6. b. 1,45 m 3. Jakob Hafstein 6. b. 1,45 m Keppendur 12. Hástökk með atrennu: 1. Kjartan Guðjónsson 6. b. 1,87 m 2. Haukur Ingibergsson 5. b. 1,70 m 3. Jóhannes Gunnarsson 6. b. 1,65 m Keppendur 14. Sjötti bekkur hlaut 47 stig og fimmti 41. Aðrir bekkir hlutu ekki stig. 144 MUNINN

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.