Heimilisblaðið - 01.07.1940, Síða 34
134
HEIMILISBLAÐIÐ
Hólaíör prentara
I minningu þess, að í ár er talið að liðin
séu 500 ár frá því að Jóhann Gutenberg
fann upp prentlistina, efndu prentarar til
Hólaferðar. En þar var fyrsta prentsmiðja
á íslandi stofnuð og starfrækt af Jóni bisk-
.upi Arasyní, er talið að hún hafi verið flutt
hingað um 1530.
Sunnud. 23. júní var lagt af staðfrá Rvík
með Laxfoss til Akraness, en þar biðu 10
stórar bifreiðar, sem fluttu prentara og
gesti þeirra norður. Um 180 manns tók
þátt í förinni. Ha-ldið var viðstöðulaust
að Hreðavatni, og þar staðnæmst lít-
ið eitt, og síðan haldið að Reykjaskóla í
Hrútafirði og þar snæddur miðdagsverður.
Þar voru mættir prentarar frá Isafirði,
sem slógust í hópinn. Síðan var haldið sem,
leið lig'gur yfir Hrútafjarðarháls og Víði-
dal og bar ekkert til tíðinda, fyrr en kom
í Vatnsdalshóla. Voru þar mættir nokkr-
ir höfðingjar úr Húnaþingi, og bauð hér-
aðslæknir, Páll G. Kolka, hinn fjölmenna
hóp velkominn í Húnavatnssýslu. Minnt-
ist hann þess í ræðu sinni, að Hún-
vetningar hefðu sérstaka ástæðu til að
bjóða prentara velkomna, þar sem svo
mætti segja, að þar væri vagga prentlist-
arinnar. Vildi hann halda því fram, að þar
hefði prenísmiðja fyrst verið sett. En
þetta ,mun ekki vera rétt, enda leiðrétti
Hallbjörn Halldórsson prentari það,
er hann þakkaði Húnvetningum fyrir
móttökurnar. — Jón Borgfirðingur seg-
ir í »Söguágripi um prentsmiójur og
prentara á Islandi«, að Jón biskup liafi
sett prentsmiðju sína á Hólum, enda er
þar prentað »Breviarium Nilarosiense«
1534. — Líklega hefir ekkert annað verið
prentað í prentsmiðjunni á Hólum, því um
líkt leyti fær séra Jón Matthíasson, sem
var prentari biskups og hafði komið með
prentsmiðjuna, sænskur maður, veitingu
fyrir Breiðabólsstnð í Vesturhópi og flytur
prentsmiðjuna þangað með sér og þar var
hún um langt skeið og margt í henni prent-
að. Þaðan flyzt hún s.vo að Núpafelli með
Jóni prentara Jónssyni (syni séra Jóns
Matthíassonar). Svo Húnvetningar hafa,
hinn fylsta rétt til þess að telja, að þar í
sýslu hafi vagga, prentlistarinnar staðið
um langt, skeið.
Það eina, er skyggði á gleði manna í
ferðalaginu, var dimmviðri svo að illa nau,t
útsýnis yfir hin svipmiklu héruð Húna-
þings.
Eftir að Húnvetningar höfðu verið kvadd-
ir í Yatnsdalshólum, var ekið af stað og
hvergi tafið fyrr en við Bólstaðarhlíð. Víða
er þar fallegt í góðu veðri yfir að líta, en
langfegurst finnst mér þó vera í Bólstað-
Guðbrandarbiblía, sú er íslensJta prentarastéttin gaf Hóla-
dómkirkju.
Á myndinni t. h. sést síðasta blaðsíða Gamlatestamentisins
og titilblað Nýjatestamentisins.