Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1947, Síða 18

Heimilisblaðið - 01.03.1947, Síða 18
62 HEIMILISBLAÐIÐ Inger Bentzon Typtu föður pinn í tíma /ATTÓSEN kaupmaður komst alls ekki við, er einka barn lians sagði: — Þú ert svo fornfálegur í liugsunarhætti, að bráðum verð- ur reynt að fá þig keyptan á forngripasafnið! En frú Ottósen grét ákaft. — Að lieyra, hvernig þú talar við liann föður þinn, barn! Þú veizt, að hann vill þér ekkert nema liið bezta! — Það er líka forn-norræna! Nú á dög- um láta foreldrar börn sín fara í hundana á þann hátt, sem þau helzt vilja. En ég skal sannarlega ekki fara í hundana! Ég ætla bara að giftast Eðvarði, og búið með það! Hann er bráðduglegur strákur, og það hefur pabbi kannazt við, þangað til ég triilofaðist honum — og það veiztu vel. Frú Ottósen þurrkaði sér um augun og varð íbyggin. — Þú veizt nú líka, Stella litla, að þang- að til Hólm kom hingað í búðina, gaztu vel liugsað þér að giftast From. — Nú, jæja, — svo langt var málinu nú ekki komið, en ég bannaði ekki From að gera sér gyllivonir. Finnst ykkur það ekki mikið liapp, að Eðvarð skyldi koma, áður en ég lilypi svo hrapallega á mig? Það hefðu orðið læti í lagi, ef ég liefði sagt From upp eða skilið við liann, ef við hefðum þá þegar verið verið gift! Því að það er og verður Eðvarð, sem ég ætla mér! En Ottósen vék ekki um hársbreidd. Hann átti í fullu tré við unga fólkið, því að Stella var ekki tvítug, og það vantaði því meir en ár á að hún gæti gengið í lijónaband án sam- þykkis foreldra sinna, og svo var líka fjár- hagshliðin, því að Hólm var félaus. En það var From ekki! Hann var sonur kaupmanns- ins, sem hafði verið keppinautur Ottósens, þangað til liann fluttist til næsta bæjar og keypti verzlun þar. Ottósen hafði jafnan átt í fullu tré við eftirmann hans, og hann var nú sjálfur umsvifamesti kaupmaðurinn í bæn- um. En það var mikil bót í máli, að Hólm hafði gengið í heimavarnarliðið, svo að Ottó- sen slapp við að reka hann úr vistinni. En nú var Stella að reyna að neyða liann eða kvelja bann til að kaupa lianda þeim sölu- turn niður við járnbrautarstöðina. Það yrði . líka ævi. sem dóttur lians yrði búin, að sitja sýknt og lieilagt í slíkri holu! — Já, en það er bægt að græða á þvn pabbi, sagði Stella. Það verða nokkur erfið ár fyrst, en þá verðum við líka búin að safna nógu til að kaupa litla verzlun, og við skul- um sveimér setja líf í tuskurnar, það máttu reiða þig á. — Þú veizt ekkert hvað það er, sem þú ert að fleipra um! sagði Ottósen. Og svo minn- umst við ekki á það framar. Stella varð hnarreist og leit með fyrir- litningu á veslings From, þegar hún gekk frain lijá lionum, svo að liann bað Ottósen enn einu sinni um að mega fara. —- Já, ef þér viljið rófa niður leggina —' ég meina leggja niður rófuna og laumast burt, þá þér um það! sagði Ottósen bálreið- ur. Og From varð kyrr. Honum leizt vel a stúlkuna, og "honum leizt líka vel á vænt- anlegan lieimanmund. Hann var búinn að kvnna sér verzlunina hérna, og hún gaf góð- an arð, betri en verzlun föður lians, því að Ottósen fylgdist betur með. Og Stella fór upp á lierbergi sitt og kom skömmu síðar niður með nótnaliefti og for í spilatíma. Á leiðinni braut hún beilann um, hvað til bragðs skyldi taka, því hún vildi ekki afsala sér hamingjunni fyrr en i fulla linefana. Hálftíma eftir að spilatímanum lauk, var liún á gangi með Eðvarði á sjávargötunni og skýrði honum frá fyrirætlunum sínum. Hann ýtti einkennisbúfunni sinni fram og aftur a Ijósu hárinu, og virtist á báðum áttum. En Stella lét ekki aftra sér. — Jæja, þá! saq;ði Eðvarð. Stella var mjög hæglát næstu daga á eftir. Móðir hennar varð áhyggjufull, og lét í ljós kvíða sinn kvöld eitt, er þau gömlu lijónin

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.