Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 6

Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 6
verið settir á land áður. Þá vildi svo til, að Selkirk var kominn upp á kant við sjálfan skipstjórann og krafðist þess að fá að fara í land og taka með sér allt, sem hann átti um borð. Þetta var snemma vors á þessum slóð- um, og eyjarnar hafa óefað haft laðandi áhrif á hann. Hinir sjómennirnir höfðu komizt prýðisvel af í hálft ár, svo að hon- um taldist svo til, að sér myndi einnig geta vegnað þar vel. Auk þess voru iðu- lega skipaferðir framhjá eyjunum. Engu að síður skipti hann um skoðun á síðustu stundu og vildi halda siglingunni áfram, — en þá var skipstjóri með öllu ófús til að taka hann um borð aftur. Fjórum árum og f jórum mánuðum síðar var Selkirk bjargað af Woodes Rogers skipstjóra. Og þá lenti hann í því, sem var litlu betra en ógnun mannætanna: Blaða- mennirnir köstuðu sér yfir hinn heim- komna útlaga. Orð sem hann lét falla við það tækifæri urðu áhrifamikil fyrir alla þá, sem síðar hafa fjallað um efnið: mað- urinn á eyðieyju — það voru þau ummæli hans, að „óttalegt væri að vera skilinn eftir einn á öryggislausum stað“. Sjálf bar- áttan fyrir tilverunni, sem svo mikið kem- ur við sögu í bókinni um Róbinson, snart í rauninni Selkirk harla lítið. Staðurinn, sem hann hafði sjálfur valið sér til útlegðar, var engan veginn illa til slíks fallinn. Eftir að Juan Fernandez og nokkrar landnemafjölskyldur höfðu dval- izt á eyjunum, var þar urmull af hálf- villtu geitfé — „lamadýrin“, sem talað er um í bókinni. Kettir höfðu einnig komizt þar á land, þegar skip höfðu nálgazt eyna til að sækja sér vatnsbirgðir. Síðar höfðu nokkrir Indíánar dvalizt þarna; þeir höfðu gleymzt við einhverja landgönguna, og þeir höfðu ræktað landið að nokkru leyti, sem kom sér vel fyrir Selkirk. Hann fann fjöld- ann allan af ætilegum plöntum. Sjórinn var auðugur af fiski, og í fersku vatninu var aragrúi af lostætum, stórum kröbbum. Hið eina, sem olli Selkirk raunverulegri viðurstyggð, voru rotturnar, sem bitu hann í fæturna og nöguðu fatnað hans á meðan hann svaf. Og svo vantaði hann salt og brauðmeti. Þessi raunverulegi Róbinson átti þannig margs kost, sem bæði Róbinson skáldsög- unnar og aðrir uppdiktaðir eða raunveru- legir skipbrotsmenn hafa ekki átt. Hann var vel fataður og útbúinn á ýmsan hátt. Síðar, þegar föt hans voru orðin útslitin, var hann orðinn það slyngur í höndunum, að hann gat saumað sér föt úr geitarskinn- um, sem hann njörvaði saman með skinn- þráðum. Hann notaði langan tréstaut í nálar stað. Aftur á móti var eldurinn vandamál, bæði í raunveruleikanum og skáldsögunni. Vasahnífurinn var hins veg- ar miklu auðleystara efni. Selkirk hafði haft hann með sér í vasanum. Upplifun Selkirks á eynni þolir engan samanburð við þá hugmyndaauðgi, sem Róbinsonssagan gefur tilefni til. Eða skyldi Róbinson ekki lesa með öfund list- ann yfir það, sem Selkirk raunverulega flutti með sér í land ? Útifatnaður, sængui’- föt, skotvopn, púður, högl, tóbak, öxi og önnur hagnýt áhöld, siglingafræðitæki og bækur. f farangri hans var einnig glerhúð- uð steinkrukka og geysistór drykkjar- kanna. Hafi maður lesið um erfiðleika Róbinsons við leirkeragerðina, getur mað- ur skilið notagildi krukkunnar og könn- unnar. Ekki var Selkirk samt hamingjusamur. Vöntunin á umgengni við annað fólk olli hinum samkvæmisglaða Selkirk mikilli raun. 0g hann þjáðist af ótta við hina villtu náttúru umhverfis. Sigurinn yfir öllu þessu vonleysi hefur verið hugþekkt efni öllum siðalærdómsmönnum. Eftir nokkurn tíma sökkti Selkirk sér niður í Biblíurannsókn- ir og athuganir með siglingartækjunum. Hann las, söng sálma og baðst fyrir — jafnframt því sem hann varð að afla sér fæðu. Loks háði hann harða en með öllu vonlausa baráttu við rottumergðina. Nokk- uð rofaði til, þegar honum tókst að hæna til sín fáeina villiketti og beita þeim á rott- urnar. Þann 31. janúar 1709 sá Selkirk til skipsferðar frá útsýnishæð sinni. Þegai’ hann hafði fullvissað sig um, að það vai’ enskt, kveikti hann bál. Reykurinn sást, og báti var skotið í land. Sjómennirnir sáu þar fyrir einsetumann, „klæddan í geitar- 138 HEIMILISBLAÐI®

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.