Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 14
í hringleikahúsinu eru dýr
látin sýna ýmislegt, sem þau
liafa verið tamin til að gera,
en á milli þátta má oft sjá
margt broslegt, sem þeim fer á
milli. Myndin er af einu slíku
atriSi.
<
Risafíllinn Diksi í dýragarð-
inum í Lundúnum vegur 3,5
tonn. Menn biðu með eftir-
væntingu eftir að sjá hvernig
hann tæki á móti landa sin-
um, ungum fíl, sem fluttur
var frá Tanganika í Afriku i
dýragarðinn. Það var ekki
hægt að sjá annað en að það
yrðu fagnaðarfundir.
>
í enskum skólum eru nem-
endurnir hvattir til að æfa
skilmingar, en skólarnir hafa
svo keppni sín á milli, og þeir
sem ná beztum árangri í þeim
málum, fá að launum að fara
á heimsmótið í skilmingum.
Myndin er tekin í skóla i
Lundúnum, þar sem 700 nem-
endur æfa skilmingar.
<
>
Panda er þessi bjarndýra-
tegund nefnd. Heimkynni hans
eru bambursskógar í fjallendi
Kína. Hann er nú að verða
útdauður í heimalandi sínu.
Myndin er af hinu eina dýri,
sem til er á vesturhveli jarðar,
en það er í eigu dýragarðsins
i Lundúnum.
Hin fræga Lundúnaþoka veld-
ur oft kvefpestum á veturna.
Hringleikahússapinn „Rascal"
fer þvi ekki út á þeim tíma
árs, nema að hafa þetta önd-
unartæki.
<
Gestgjafi í Norður-Indlandi á
þennan einkennilega kanarí-
fugl, sem ekki þiggur annan
drykk en gin, blandað með
vatni. Allan daginn situr hann
á barmi gin-glassins, en þegar
gestirnir yfirgefa veitingastof-
una á kvöldin, fer hann í búr-
ið sitt og dvelur þar til morg-
uns.
>
146
heimilisbla®111