Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 34

Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 34
Kelmer, „virðist hafa gleypt Róbert með húð og hári.“ „Giftist hún honum af ást eða vegna peninganna?" spurði Rinna beisk. „Af hvoru tveggja, býst ég við,“ svaraði frú Kelmer. „Hún heldur, að hún hafi gripið gæsina. Ég hef ekki sagt henni sannleikann ennþá.“ „Hvernig skyldi hún svo taka honum?“ mælti Martin þurrlega. „Ekki veit ég það. Hún sagði, að pening- ar hefðu enga þýðingu fyrir sig í þessu sambandi. Ég fel þér í hendur, Martin, að tala við hana einslega og komast að því, hvernig allt er 1 pottinn búið.“ Martin Grove var maður, sem jafnan var hægt að bera traust til, þegar vanda sem þennan bar að höndum. „Þú ættir þó sjálf að hafa þá ánægju að veiða upp úr henni, Dahlia,“ sagði Rinna við frú Kelmer. „Það myndi ég gera í þínum sporum — eftir bréfið sem hún skrifaði þér. Það hlægilega bréf — smjaðurslegt, rétt eins og hún héti því að annast þig í ellinni — og ekki að komast upp á milli þín og Róberts. Hún er öldung- is sérstæð.“ „Þú hefur ekki séð bréfið ennþá, Martin, er það?“ sagði frú Kelmer. „Nei. En má ég lesa það?“ „Mér finnst, að Martin ætti að sjá það,“ sagði Rinna. Frú Kelmer leitaði að bréfinu í "skrif- púlti sínu, sem stóð á milli glugganna. Martin gekk að henni og stóð úti í öðru gluggaskotinu á meðan hann las. Honum var ljóst, að báðar þessar konur voru svo gramar í geði, að þær gætu með Ijúfu geði heyrt hina ungu konu Róberts dæmda til dauða og séð hana tekna af lífi — aðeins ef hún mætti komast burt úr tilverunni. Hann vissi, að Rinna var kven- hugsjón hans sjálfs, en samt var hún ekki síður harðbrjósta en frú Dahlia Kelmer. Bréfið, sem hann nú las, virtist honum barnslegt, en engu að síður vakti það hjá honum nokkurn efa. Hann átti bágt með að trúa því, að stúlkan, sem hafði skrifað það, væri á höttunum eftir skjótfengnum auði, eins og þær konurnar álitu hana vera. Bréfið hljóðaði þannig: Kæra frú Kelmer! Ég skrifa þetta bréf án vitneskju K°' berts, vegna þess að mér finnst við maW1' eskjurnar stundum vera harðneskjuleg^ hver við aðra, og ég gat ekki hugsað wel að reynast harðbrjósta við aðra konu, síd af öllu móður Róberts. Við Róbert urðum ástfangin hvort oj öðru við fyrsta augnatillit, og þegar Peí lesið þetta, erum við gift og í brúðkauVs', ferð. Við höfum í hyggju að setjast að 1 Veiðimannakránni í Vithel. Ef yður keW ur ekki þetta þeim mun meira óþægileV6 á óvart, þætti mér fjarska ánægjulegt, e1 j þér vilduð senda mér kveðju. Ég myndi verða glöð og hamingjusÖtil> ef ég vissi, að móðir Róberts hefði dál&^ á mér. Róbert hefur óskað þess, að 1$ giftum okkur strax og í algjörri kyrrþe*• Hann þolir ekkert umstang, eins og Pc> munuð vita. Þér þekkið hann sjálfsa^ miklu betur en ég geri. Það olli mér kvíða, þegar hann tjáði mer' að þér byggjuð hjá honum og að þér my^' uð vera því mótfallin, að hann kvæntisj' En kæra frú Kelmer — kæra tengdamóðV' ef ég má leyfa mér að kalla yður það fyrir alla muni verið ekki áhyggjufull. hef ekki minnstu löngun til að taka K°' bert frá yður — fram yfir það sem ég se)C eiginkona hefi að sjálfsögðu mín réttind En þau þurfa ekki að stangast á við yðof' eða finnst yður það? Ég er ekki ásælt1>' Ég óska aðeins, að ég falli yður vel í 96; og þér komið til með að láta yður þyMlt vænt um mig. Ég elska Róbert svo innilega. Yðar tengdadóttir Tía. Martin las bréfið þrisvar sinnum. Kjá'1' inn sá arna, hugsaði hann. Að yður þý^1 vænt um mig — að ég falli yður í geð! Ogþó...? „Ég hef ekki hugmynd um, hvaðan hu1] er upprunnin eða hvar hún á heim^' heyrði hann frú Kelmer segja. Hann sneri sér hægt við og braut bréf1 saman. Þessi athugasemd hafði snert vi0' kvæman streng í brjósti hans og vakið t1 166 HEIMILISBLAPÍ®

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.