Heimilisblaðið - 01.07.1964, Page 38
Við, sem vinnum eldhússtörfin
Flestar höfum við húsmæðurnar gaman
af að reyna nýjar kökuuppskriftir, en aft-
ur á móti erum við ekki eins duglegar við
að reyna nýjar miðdagsuppskriftir. Ég
ætla nú samt að koma með nokkrar, sem
ég held að flestir meðlimir fjölskyldunnar
yrðu ánægðir með.
Sumareggjakaka:
6 egg
2 msk. hveiti
1% dl. mjólk
50 gr. smjör eða
smjörlíki
Eggin eru vel þeytt ásamt hveitinu, og
mjólkin látin út í. Hitið smjörið á pönn-
unni og hellið eggjadeiginu á hana. Bakið
eggjakökuna við hægan hita í ca. 10 mín.
Leggið grænmetið í raðir á eggjakökuna
og skreytið með tómatsneiðunum utan með.
Leggið steiktar bacon-sneiðarnar ofan á
og skammtið eggjakökuna beint af pönn-
unnni.
Risakjötbolla:
375 gr. kjötfars 125 gr. sveppir
1-2 laukar 250 gr. tómatar
smjör eða smjör- salt, pipar.
líki
Kjötfarsið er steikt á pönnunni eins og
stór kjötbolla og er steikt á báðum hliðum.
Það má ekki vera of mikill hiti, því þá
gæti orðið erfitt að steikja farsið í gegn
án þess að það verði of dökkt. Skerið nú
sveppina í tvennt, og skerið laukana niður.
Brúnið hvorttveggja í ofurlitlu smjöri.
Skerið tómatana í sneiðar og snúið þeim
augnablik í smjöri og leggið síðan ofan á
bolluna, þegar búið er að snúa henni.
Kryddið með salti og pipar og hellið
sveppablöndunni yfir. Bollan er látin heil
á fat og skorin eins og terta. Kartöflur og
salat er borðað með.
Buff með Figaro-sósu:
4 sneiðar nautakjöt smjör eða smjöf'
(hver sneið ca. líki, salt, pipar.
125 gr.) 4 sneiðar ristað
brauð.
*£)
Berjið kjötsneiðarnar aðeins og reyn1,
að hafa þær kringlóttar. Steikið þssf *
nokkrar mínútur á hvorri hlið, með WJ0*
litlu smjöri og kryddið þær þegar þær el|!
tilbúnar með salti og pipar. Leggið þ®1! ^
nýristað brauð og hellið ofurlitlu af
unni yfir.
Figaro-sósa:
1 tsk. rifinn laukur
1 msk. edik
100 gr. smjör
2 eggjarauður,
6-8 sneiðar af bacon
baunir, aspargus,
sveppir og tómat-
sneiðar.
sítrónusafi, kjö1'
kraftur, salt, P'Pf,
ca. 1 tsk. pip&rr
170
HEIMILISBLAP15