Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 8

Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 8
Hindurvitni Smásaga eftir Cyrus Brooks. Evelyn Knox var hjátrúarfull. Fólki fannst það reyndar heillandi, rétt eins og blásvartir hárlokkar hennar og augu,freist- andi munnur hennar, netta hakan og un- aðarfullur líkamsvöxturinn. Hjátrú Evelynar birtist í ástríðuþrungnu dálæti á því að leggja kapal, spá í kaffi- korg og tegums, auk þess sem hún hafði mikla ást á köttum, að ógleymdum ýmsum verndargripum. Einn slíkan verndargrip, sem hún nefndi „Litla Hugh“, bar hún að jafnaði í bláum borða um hálsinn. Og hér erum við komin að efninu. Kvöld eitt, þegar Evelyn var að fara heim úr bíói, týndi hún þessum verndargrip. Hún varð þessa fyrst vör, þegar hún var komin heim og ætlaði að fara að hátta. Og óðara en hún áttaði sig á þessu varð henni ljóst, að örlögin höfðu eitthvað sér- stakt í hyggju með því að láta þetta ske. Hún stóð með hárburstann í annarri hendi fyrir framan spegilinn og virti fyrir sér sorgmæddan svip sinn. Hún var að því komin að klæða sig aftur og fara út til þess að leita að „Hugh litla“. En til hvaða gagns yrði það? Pínulítill verndargripur, sem búið hafði í ró og tilbreytingarleysi við barm hennar, innanklæða, myndi óum- flýjanlega vera að eilífu glataður, úr því hann var á annað borð sloppinn út í botn- lausa ringulreiðina á götum Lundúnaborg- ar. Evelyn lét sér því nægja að fella nokk- ur hljóðlát tár og gekk síðan til hvílu, yfir- buguð af harla slæmum grun. Það fyrsta, sem hún gerði morguninn eftir, var að fella um koll saltstaukinn á eldhúsborðinu. Þetta gerði hana svo upp- næma og viðutan í senn, að hún var ekki fyrr komin út á gangstéttina nokkru síðar, en hún lagði leið sína beint undir stiga, sem reistur hafði verið upp við húsvegg- inn. Éveíyn nam staðar í kuldalegri morgun- kyrrðinni. Var það annars þess vert að fara í vinnuna í dag? Það var ekki háttui' hennar að vanrækja starf sitt, og hún gerði slíkt ekki nema í neyð. Hitt var svo aftur vafamál, hvort hún þorði yfirleitt að fara í vinnuna, eftir að dagurinn vai' byrjaður með jafn skelfilegum hætti. Var ekki eins gott að snúa við, loka sig inni það sem eftir var dags og láta örlögin —■ þær óheilladísir — leggja niður skottið í eitt skipti? Á meðan hún var að velta þessu fyrir sér, kom fram í huga henni sólbrennt andlitið á Hugh Porrits. „Litli Hugh“ var einmitt heitinn í höfuðið á honum. Kannski myndi Hugh hringja til hennar í dag. Nei, hún varð að láta eins og ekkert væri og fara í vinnuna. Örlögin héldu sig á mottunni unz áliðið var dags, en þá brugðu þau fyrir sig Hari'- iet nokkurri Fisher. Enginn skyldi ætla um Harriet, að hún gæti reynzt handbendi sjálfra örlaganna. Hún var kringluleit og þybbin, nærsýn, hafði sérstakt dálæti á rjómakökum, og var friðsamasta mann- vera á öllu jarðríki. „Þú getur ekki ímyndað þér, hvað ég skemmti mér vel í gær,“ sagði hún með ákafa og tók undir handlegg Evelynar í stigaganginum. „Ég fór nefnilega til spá- konu — þessarar sem býr uppi á kvistin- um fyrir ofan bakaríið. Hún sagði méi' bókstaflega allt — um foreldra mína, hvað ég ætti mörg systkini, og um Bertie frænda, — hluti, sem ég hafði ekki hugmynd um- Ja, hann Bertie frændi ætti bara að korna núna og halda yfir mér siðferðisræður, ^ sá skyldi fá að heyra það, það máttu bóka '• Og hugsaðu þér, þetta kostaði ekki nema krónu. Komdu, við skulum skreppa snöggv- ast upp til hennar!“ Þegar Harriet var í þessum ham, vai' ekki um annað að gera en að hlýða. Evely11 veitti enga mótspyrnu, heldur lét teyma sig upp snúinn og skakkan stigann til spákonunnar. Hún hefði reyndar átt að hugsa sig betur um og ekki láta þetta henda sig eftir hina þreföldu viðvöruW fyrr um daginn. En hugur hennar hafð1 140 heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.