Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 36

Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 36
tala við frúna. Vinur herra Róberts, Ric- hard Kampe.“ „Bjóðið herra Kampe inn í einkaher- bergi mitt, Frost.“ Dahlia stóð á fætur. Hún vonaði það eitt, að hinn ókunni yrði ekki til að gera fjölskylduvandamálið ennþá flóknara eða reyna að leggja hindranir í veg fyrir óska- draum hennar sjálfrar: að Rinna fengi Róbert — hvernig sem fara skyldi að því að láta þann draum rætasti Engu að síður hafði hún á tilfinningunni, að koma hans myndi valda einhverjum erfiðleikum. Richard Kampe var fljótur að hugsa: konu virðulega. ,,Ég las í blaðinu um slys- ið, sem Róbert varð fyrir, frú, og þar sem ég var af tilviljun staddur hér í grennd- inni fannst mér ég yrði að koma hingað og vita, hvernig liði. Mér þykir þetta fjarska leitt.“ Þau höfðu tekizt í hendur, og hún hafði óðara fengið andúð á honum, án nokkurr- ar sérstakrar ástæðu, aðeins af kvenlegu drembilæti sínu. Henni fannst hann vera auvirðilegur. „Þakka yður fyrir, það var ósköp elsku- legt. Líðan Róberts er nokkurn veginn sæmileg, þótt hann hafi reyndar ekki kom- izt til meðvitundar ennþá.“ Richard Kempe var fljótur að hugsa: Róbert er dottinn út úr rullunni! Frú Kelmer hugsaði: Hvað skyldi þessi ná- ungi vita mikið? Hann að sínu leyti hugleiddi það — og vegna þess var hann í rauninni hingað kominn — hversu mikið frú Kelmer kynni að vita um stúlku Róberts. „Það var hörmulegt, að þetta skyldi koma fyrir svona rétt í upphafi brúð- kaupsferðarinnar,“ mælti frú Kelmer. Jæja, Róbert hafði þá sagt henni, að hann væri kvæntur. „Já, mjög hörmulegt,” svaraði hann. „Þér vitið þá, að sonur minn var að gifta sig, herra Kampe?“ „Jájá. Ég var svaramaður hans.“ Hann átti að verða svaramaður Róberts, ef ekki hefði komið fyrir þetta með leyfisbréfið — og hver vissi betur en hann, hvers vegna það hafði strandað? Hann ætlaði sér ekki 168 að nefna nafnið á viðkomandi kirkju, svo j að hún færi ekki að gera fyrirspurnir. Án efa hafði Róbert haft sínar ástseð- ur .. . „Það var lán, að sonur minn var me^ öll skilríki sín með sér,“ sagði frú Kelme1’’ „svo að hægt var að þekkja hann, þegs' hann fannst meðvitundarlaus ekki alllanS* hér frá. Heimili hans var nær en nokkui'* hinna stærri sjúkrahúsa, svo það var auð; veldast að flytja hann hingað. Ég er ánæír með það.“ „Já, það skil ég,“ tautaði Kampe og fán11 næstum til samúðar. Honum varð hugsað til fundar síns vjð | Róbert, æfan af reiði og stúrinn, fyrl1 nokkrum kvöldum. Hann minntist þess> j hversu hann hafði krafizt þess að fá leyflS' bréfið — og svarið, sem hann hafði orð>ð að gefa honum. „Tengdadóttir mín hefur að sjálfsögð11 ekki getað sagt mér mikið ennþá, því hu11 er rétt nýkomin,“ sagði frú Kelmer. Jæja, svo að stelpan var hérl hugsuð1 ; Richard Kampe. „Við hringdum til hennar í Vitbel sti’U^ og búið var að flytja hann hingað,“ hék ; frúin áfram. „Hún hlaut að vera mið1'1 sín af hræðslu, veslings barnið.“' Frúin virti hr. Kampe fyrir sér mei1'3 en honum fannst sjálfum þægilegt. „Ég skil það. Má ég hringja hingað fy1' ir hádegið á morgun, frú Kelmer?“ Hu1111 reis á fætur. „Gjarnan." Hún sat kyrr og virti ha111! ; fyrir sér. „Þér eruð í heimsókn hér 1 grenndinni, segið þér? Eruð þér hjá nokk1' um, sem ég kannast við?“ „Ég bý í litlu gistihúsi hér niðri í þoi’P' inu.“ „Því þá það?“ spurði hún undrandi. , „Ja, því ekki?“ gegndi hann brosau^1' Þegar hún leyndi ekki undrun sinni, bse1 , hann við: „Róbert var svo vingjarnleg111 að bjóða mér að heimsækja sig hingu0, þegar hann kæmi heim úr brúðkaupsf01' inni. Ég hef setzt að í kránni rétt á meðu’1 ég bíð.“ — Að líkindum myndi Róbe1^ ekki muna það, þegar hann vaknaði, hvo1 hann hefði boðið honum eða ekki. Frú Kelmer reis á fætur, eins og bU HEIMILISBLAÚ1*’

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.