Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1965, Síða 4

Heimilisblaðið - 01.12.1965, Síða 4
í borginni, en skundaði á vettvang og lagði allt kapp á, að eldurinn yrði slökktur. Það var ekki auðvelt viðureignar, og Neró leit- aði að einhverjum, sem hann gæti skellt skuldinni á, til þess að beina reiði fólks- ins frá sjálfum sér. Kristnir menn urðu fyrir valinu, „manntegund með nýja og skaðlega hjátrú“, eins og Svetonius ritar, sértrúarflokkur, sem fólk bar á alls konar sakir, bæði af fáfræði og útlendingshatri. Nú verður veðhlaupabraut Caligúlu vett- vangur ægilegra atburða. Kristnir menn eru pyntaðir úti á leiksviðinu, tjöru er hellt yfir heila hópa af trúuðum mönnum og síðan kveikt í þeim eins og kyndlum. Eða þeir eru krossfestir. Það síðarnefnda varð hlutskipti Péturs. Hæðin Vaticanus. — Kirkjugarður- inn við Via Cornelia. — Konstantín keisari byggir kirkju. Samkvæmt rómverskum lögum á að af- henda líkama líflátins manns ættingjum hans. Þegar sömu nóttina, sem Pétur var krossfestur, tóku áhangendur hans líkama hans í sína vörzlu. Hann var fluttur með leynd til greftrunarstaðar fyrir heiðingja við Via Cornelia á bak við veðhlaupa- brautina. Þessi heiðni kirkjugarður var á ,,Vatikanhæðinni“. Latneska orðið ,,vates“ þýðir spámaður, spásagnamaður. Etrúsk- ar höfðu véfrétt í fornöld á þessum stað. Þarna var Pétur grafinn meðal margra annarra. Fyrsta sigurmerkið á gröf post- ulans var byggt af St. Analectus. Hann hafði verið vígður til prests af Pétri og varð þriðji biskup Rómaborgar. Hver sem gekk framhjá, gat séð sigurmerki Péturs uppi á hæðinni. „Farðu til Vatikanhæðar- innar og út eftir Ostiaveginum, og þú munt sjá sigurmerkin yfir þeim mönnum, sem stofnuðu kirkjuna í Róm“, skrifar prest- urinn Gajus á 3. öld. Þó að það væri alls ekki hættulaust fyrir kristna menn, ef komið væri að þeim þar út frá, vöidu þeir samt frá fyrstu stundu gröf postulans sem samkomustað. 1 skjöl- unum viðvíkjandi St. Sebastian er þess getið, að þarna hafi hin heilaga Zoe verið handtekin og flutt burt til pyntingar. — Seinna komu pílagrímar með leynd frá útlöndum til Rómaborgar, árið 269 kom Péturskirkjan á Vatican-hœSinni, 224 heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.