Heimilisblaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 2
- Sólargeislinn
Þú sól, er aldrei sefur, en signir höf og lönd, — og allt hið veika vefur þín voldug kærleikshönd. Við söfnum öllu sjúku í sólargeislans yl, þar lifir Ijúfust vonin eins lengi og hún er til.
Þú vekur böm af blundi, og blómum skrýöir mold; og jökulkuldinn klökknar meS kristáltár á fold. Með blóm og böm og vonir, — hið bezta er á eg til, — eg sæki í sólargeislann, í sólarljós og yl.
Þú ríkir yfir öllu um allan stjamageim. Þú lífgar allt sem lifir, þú lýsir allan heim. Eg sé — að baki sólar er sólarguðsins hönd að benda manna bömum á björt og ylrík lönd.
Skal mannsins hjarta og hugur þá hafna Ijósi því, er dauöans dægurflugur sig draga geislann í? Eg sit með sögu Mána og sólarguðinn bið, — unz andans hrjóstur hlána og hjartað eignast frið.
Þá húm og hregg þig félur, vill hrasa andi minn. Er aftur sér til sólar, hve sæll er maöurinn. 1 helgum sólarhita eg hjarta Guðs míns finn. — Þeim sólaryl eg safna og sofna — í geislann inn.
Og ýmsum áldrei gleymist að án þín, geisli, oss kól. — Hve lífiö, — landið, bamið sér lék við júní-sól. Þeim yl eg fel minn anda og að því Ijósi’ eg sný. Sem bam eg vona og vakna þeim vonargeisla í. Jónas A. Sigurðsson-