Iðunn - 01.01.1884, Blaðsíða 2
IioðsHírjef'.
Allar aðrar þjóðir en vjer Islendingar, þær er
nokkrar bókmenntir eiga, hafa til mikið af góðum
skáldsögumog öðrum skemmtiritum, og eru þargefin
út tímafit eingöngu í þeim tilgangi að skemmta mönn-
um. En vjer íslendingar erum gjörsnauðir af þess
konar ritum, og er þó fáum þjóðum meiri þörf áslíku
en oss, þar sem svo lítið er annars um skemmtanir
á landi voru.
Fyrir þá sök, og af því að lestur v a n d a ð r a
skemmtirita er einhver hin bezta, saklausasta og
menntunarríkasta skemmtun, þá virðist það varla
efamál, að tilraun í slíka átt muni bæta úr verulegri
þörf og skorti bjer á landi.
f>ví höfum vjer undirskrifaðir tekið oss saman
um að gjöra tilraun til að bæta úr þessum skorti, til-
raun til að svala hinni ríku og eðlilegu lestrarfýsn
manna á hollan hátt, 'með því að gefa út MÁNAÐ-
ARRIT, er innihaldi stuttar skemmtisögur, og ef til
vill nokkrár æfilýsingar merkra manna, ferðasögu-
kafla útlenda og annað það, ei' söun og menntandi
skemmtun og fróðleikur sje að.
það er auðvitað, að megin efnisins verða þýð-
ingar af útlendum ritum, og þarf naumast að geta
þess, af vjer munum velja helzt rit eptir beztu höf-
unda, og eins viljum vjer, ef þess vcrður kostur.taka
frumsmíði íslenzkra höfunda. Auðvitað munum vjer
vanda svo efnisval, málfæri og annan frágang, sem
oss er framast auðið.
Fái fyrirtæki þetta þær undirtektir almennings,
að vjer sjáum oss það fært, höfum vjer í huga að
prýða rifcið með myndum.
Vjer höfum hugsað að nefna rit þetta IÐUNNl,