Iðunn - 01.01.1884, Blaðsíða 62
56
Steinhöggvarinn.
Japanakt œfintýr.
finu sinni var fátœkur steinhöggvari í Japan;
t hann vann stöðugt baki brotnuí grjótnámunum,
en fénaðist lítið, og var þess vegna sí-óánægður með
hlutskipti sitt.
«Ó væri eg að eins svo ríkur, að eg gæti hvílt
mig almennilega, og sofið á þykkum mottum og
gengið í silkislopp.»
Svo látandi kvörtun sendi hann upp til himins,
og tók einn af englunum eptir henni.
«|>ér skal verða að ósk þinni,» mælti engillinn.
Og maðurinn varð rfkur, svaf á þykkum mottum
og gekk í fallegum silkislopp.
þá bar svo til, að keisarinn fór fram hjá með
stórri riddara- og hirðmannasveit og umkringdur af
þjónurn, sem báru gullna hlíf yfir höfði honum.—
«Hvaða gagn hcf eg af því að vera ríkur,» sagði
stcinhöggvarinn, «meðan eg hef ekki skrautlega sveit
til fylgdar mér og gullna sólhlíf yfir höfuðið? því
er eg ekki keisari ?»
«það skalt þú verða,» mælti engillinn.
Og hann varð það í raun og veru. Föruneyti