Iðunn - 01.07.1885, Side 70

Iðunn - 01.07.1885, Side 70
64 Friedrich vou Hellwald: helzt á því, að bezt væri að finna einhvern þann stað, sem menn hefði lagt á stað frá fyrir nokkur- um dögum, og þá verið alveg óviltir. Eftir margar hvíldir náðu þeir loksins þangað, sem þeir höfðu leg- ið nóttina á undan ; það var þá að minsta kosti það, að það var von til, að geta fikað sig sömu leið til baka, ef nestið entist; enn það var farið að minka um vistir handa slíkum fjölda. Vistalauparnir voru orðnir nærri tómir, seinasta rommflaskan var á för- um; það voru sendir hraðboðar í ýmsar áttir að leita að vistum, enn þeirfóru oins og hrafninn hans Nóa. Fylgdarmaðrinn strauk nú, líka frá þeim, og alt fólkið var nú eftir ráðalaust og vissi ekki fótum sín- um forráð. þó var haldið af stað, og farið hægt. Landsbúar eru sterkvaxnir, enn samtþóttust þeirekki geta borið frú F. og var hún þó lauflétt. Studdist hún því við hönd rnanns síns, og kafaði snjóinn steinþegjandi í miðjum hópnum. Allir voru orðnir dauðuppgefnir, og blóðdrefjar sáust í sporunum, svo voru menn orðnir sárfættir. Augun og augnalokiu voru jorðin stokkbólgin af snjóbirtu, og þeir þoldu ekki að líta upp; einn af landsbúunum datt, og það kostaði mestu fyrirhöfn að koma honum til sjálfs sín aftr. það var ekki annað að sjá, en að þau lijón ætluðu að komast að keyptu með forvitnina, og ef til borga hana með lífinu. þeir voru komnir í opinn dauðann, og allir voru farnir að örvænta um hjálp- Enn alt í einu brauzt fagnaðaróp upp úr hásurn hálsum þessara vesalinga, því að þeir sáu þá hylla undir þá, sem sendir voru eftir vistum. þeir komu lilaðnir alls konar vistum. Nú fengu menn nýja krafta, svo að það var alliægt að halda áfram. þeir

x

Iðunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.