Iðunn - 01.07.1885, Blaðsíða 85
Kvæði.
79
sem bröttu stendur éfst á leiti
í blíð-angandi bjarka reiti
og örskammt hlíðum fögrum frá,
af guði hygg jeg valið vera,
svo vott hans tignar megi bera.
:,:Hjer vil jeg rækja kirkju Krists. :,;
Og kirkjan, það er himins höll,
og hennar ljós er sólin skæra,
sem, skrýdd í ljómann morguns mæra,
nvi rennur upp við austur-fjöll
með gullnum kransi geisla-rósa,
sem guðs er ímynd dýrðar-ljósa.
:,:Hjer gefst mjer slíka sjón að sjá. :,:
Ei aðra mjer jeg kirkju kýs;
en kross jeg reisi’ á þessum stalla;
hj.er vil jeg jafnau Krist á kalla,
þá sól á drottins degi rís.
Og bergaltarið vígt skal vera,
og vjeum æðri helgi bera,
:,: sem jafnvel heiðni helgist af.:,:
Mín ætt, þá líf mitt liðið er,
þó lúti’ að siðum heiðnu þjóða,
þess vænti’ eg samt af guði góða
hann þiggi dýrkun hennar hjer;
og þó að nafn hans þekki’ hún eigi,
á þessum stað liún finna megi
:,: hans nálægð samt á nokkurn hátt«. :,:
Br. J.