Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Qupperneq 8
250 Ágúst H. Bjarnason: [JÐUNN
bjóðendur þess sögðu og gerðu, svo að engin hætta
var á, að þar slægi í baksegl, ef farið væri að vilja
þess. Því bar nú að semja og það hið bráðasta, og
ef niðurstaða samninganna reyndist æskileg, þá að
koma henni sem fyrst í framkvæmd.
Alt var þetta vel og viturlega ráðið og ber vott
um djúpa stjórnmálahyggju hjá þeim, sem þar bafa
lagt ráðin á, og mun Jón Magnússon hafa átt drjúgan
þátt í því. En um lagni hans og lipurð er öllum
kunnugt og höfum vér nú á sextugs afmæli hans
fengið skýra yfirlýsing um það af hálfu Dana, að
honum »framnr öllum öðrum íslendingum sé að
þakka, að hinum vandasömu samningum lauk svo
friðsamlega«. Er þetta góður vitnisburður og sjálf-
sagt sannur.
Því hefir nú áður verið lýst, hversu sambandslaga-
nefndin var skipuð bæði af hálfu Dana og íslend-
inga (sbr. bls. 184—85), svo og, liversu sambands-
lagagerðin sóttist. En hér birlist nú mynd frá þeirrí
heillastund, þegar sambandslagagerðinni var lokið.
Það var 18. júlí f. á. Mynd þessi er tekin í kennara-
slofu Háskólans, þar sem sambandslaganefndin hafðr
setið að verki. Nú var verkum hennar lokið og sam-
bandslagamennirnir í þann veginn að standa upp*
Allir ritararnir, þeir Magnús Jónsson, Funder, Gísh
ísleifsson og þorst. Þorsteinsson, eru þegar staðnir
upp. En nefndarmennirnir silja: yzt lil hægri handar
Borgbjerg jafnaðarmaður, þá prof. Arup, þá Hago
ráðherra, formaður dönsku sendinefndarinnar fyrir
borðsenda, þá Bjarni frá Vogi, þá Þorst. M. Jónsson,
þá Jóhs. Jóhannesson, formaður ísl. nefndarinnar,
þá próf. Einar Arnórsson og loks I. C. Christensen
yzt til vinstri handar.
Dönsku nefndarmennirnir hafa látið svo um mælt»
að hin yfirlætislausa og hjartanlega gestrisni Jons
Magnússonar og konu hans hafi gert þeim dvölina i