Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Blaðsíða 17
IÖBNN|
Bætiefni fæðunnar.
259
þetta fæði: Hrísgrjónagrautur (úr fáguðum hrísgrjón-
um), bláberjasúpa (úr þurkuðum bláberjum), tví-
bökur, kex, soðinn liskur (soðlaus). Það er auðsætt,
að þessi matur er nær bætiefnalaus, enda finnur sjúk-
lingurinn brátt til máttleysis og lystarleysis, ef hann
þarf lengi að Iifa á þessum mat. Sjálfsagt mætti gefa
sjúklingnum bygggrjónagraut í staðinn fyrir hrís-
grjónagrautinn, og væri þá síður hætta á bætiefna-
skorti.
Sig. Magnússon.
Dauði?
líftir
Viðfinn.
Þú kallar það dauða’, að í heimsorkuhyl
á að hverfa þitt persónuskart,
að öndin — hver neisti sem nýtur var lil —
fer til niðjanna', og þykir það hart,
að annar í rúmið þitt setja mun sig,
þegar sjálfur þú verður ei meir.
En ef að þú elskar hann Annan sem þig,
— þá ert ekkert, alls ekkert, sem deyr.
Það kalla ég eilífð: Hver alda, sem hneig,
rís í annari’, er tók hana’ í skaut.
Hver frjóangi blóms, sem að fæðist á teig,
vekur fjör hins, er sofnandi laut.
Æ, vertu’ ekki með þetta sífrandi suð
um að »sæluvist« taki’ yfir alt.