Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Blaðsíða 32
274 Vilhjáhnur Stefánsson: [ iðunn
Taktu mig í fang þér, fríði! funakossinn þigg og gef. Varpa ég öllu hispurs-hýði, heitum örmum þig ég vef. Gef mér Ijósið, gef mér liíið, gef mér lifið! — biður vífið.
[18981
Dvöl mín meðal Eskimóa.
I My life with the Eskimo. Neu-York 1»13]
Eflirj
Vilhjálm Stefánsson.
Rit þella ræðir um aðra rannsóknarferð Villijálms
Stefánssonar, er hann fékk hugmyndina að á árun-
um 1906—07, á meðan hann var enn á fyrstu ferð
sinni í heimskautslöndunum.
Fyrst var í ráði, að hann fylgdi Leffingwell sein
mannfræðingur á rannsóknarferð hans; en svo koni
þeim saman um, að V. St. færi niður með Maekenszie-
fljóti og hitti hann á Herseheleyju 20 d. mílur vestur
af fljótsmynninu. En skipið komst aldrei svo langt»
og því gerði V. St. ferðina upp á eigin spýtur, búinn
eins og Evrópumaður, í léttum sumarklæðum, með
byssu, skotfærum og myndavél. Og þannig stóð hann
uppi, 50 d. mílur fyrir norðan heimskautsbaug, Þa
er hausta tók, en þó fast ákveðinn í því, að snua
ekki heim aftur, heldur leita hælis hjá einhverjum
gestrisnum Eskimóum og semja sig algerlega að þeirra
siðum. Og þetla var einmitt eins og hann gat helzl
á kosið: