Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 24
266
Gilbert Parker:
l IÐUNN
skygn, að hann skilji svip manna, skilst honura bæði,
hvað búið getur undir heimskulegum hlátri manns
og handarbendingu góðrar konu, og það er ekki lílið
í það varið. Kona Hiltons sagði okkur alt. Stúlkan
hafði riðið 50 mílur vegar og ætlaði til Fort Micah,
sem var 15 milum lengra í norður. Og til hvers?
Hún hafði felt ástarhug til manns þvert ofan i vilja
og vitund ættmenna sinna. Ættirnar höfðu vegist a,
og Garrison — svo hét elskhugi hennar — var sið-
astur sinna ættmenna. Það höfðu orðið óspektir á
einni stöð Félagsins, og Garrison hafði skotið kyn-
blending. Hann þótti hafa haft fulla ástæðu til þessa,
því að kynblendingurinn hafði farið einhverjum
óvirðingarorðum um slúlkuna, og lieiðri kvenna ma
ekki granda þar um slóðir. Auk þess haíði kyn-
blendingurinn skotið fyr. Saint sern áður var Garri-
son tekinn fastur og dæmdur til eins árs betrunar-
húss. Að þeim tíma liðnum var hann aftur frjáls
maður. .Tane, svo hét stúlkan, vissi daginn, þegm'
bann kæmi út. Henni höfðu borist njósnir um það
og hafði búið alt undir. Hún vissi, að bræður sínii'
mundu sitja um hann, — þrír bræður hennar og
tveir menn aðrir, sem höfðu reynt að fá hennar.
Hún vissi, að þeir fimm mundu ekki hlífast við að
vega að honum einum. Fví tók hún nótt eina bezta
hestinn á bænum og lagði af stað til Fort Micab.
Og svo vitið þið, hversu hún komst hingað til Guidon
Hill eftir tveggja sólarhringa harða reið — nóg til
að ganga af karlmanni uppgefnuin eða dauðum
og 15 mílur voru þó eftir enn. Hún þóttist viss um,
að bræðurnir væru á hælunum á sér. En ef hun
kæmist til Fort Micah og þau yrðu gefin saman,
áður en þeir kæmu, þá væri hún ánægð.
Það voru að eins tveir hestar, sem reitt var þar a
Hiltons stöðinni þá í bili; allir hinir hestarnir voru
í ferð eða óbrúklegir í slíka rcið. Annar var I áfeti