Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 44

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 44
286 Villijálmur Stefánsson: [ IÐUNN Öllu þessu og inörgu öðru var mér sagt frá á hinn vingjarnlegasta hátt; ég þurfti að eins að gefa þeim ofurlitla bendingu um, hvað mig fýsti helzt að vita og þá fóru þau óðar að segja mér alt af létta um það, en sjálf voru þau mjög varfærin í spurningum sínum. Langaði þau ekki til að vita, hvers vegna ég væri kominn þangað og hvert ég ætlaði? Jú, þeim þætti gaman að því, en ég mundi þá segja þeim það, ef mér þóknaðist. Þetta fólk var ekki vant því að spyrja ókunnuga margra frétta, en aftur á móti hélt það, að ég spyrði svo margs, af því að það væri nú til siðs hjá mínum kynþætti; og ekki væri annars að vænta en að menn, sem væru kornnir svona langt að, hefðu aðra siði; þeim þætti ekki nema vænt um að geta leyst úr spurningum mínum og ég mætti vera hjá þeim marga daga, áður en þeim tæki að leiðast það að sýna mér öll merki þess, hversu vænt þeim þætli um komu mina. Svona sátum við og mösuðum alt að því klukku- tíma, eftir að við vorum búnir að borða, þegar boð komu um það — og það voru altaf börn, sem báru boðin — að félagar mínir væru komnir til húss þess, sem bygt hafði verið handa okkur og menn væntu þess, að ég kæmi þangað líka, því að húsið væri stórt og rúmgott, svo að margir gætu komist þar fyrir í senn og skrafað við okkur. Þegar þangað var komið, sá ég, að þótt rúmur helmingur allra þorps- búa væri kominn þangað, var nóg rúm innanhuss handa þeim fjórum lil íimm mönnum, sem mér höfðu fylgt. Innri helmingur gólfsins hafði eins og vant er verið hækkaður um 2 fet, svo að hann yrði notaðui fyrir svefnpall, og var hann þakinn sumpart okkar eigin skinnum og sumpart annara frá ýmsum heimil- um, svo að ekki væsti um okkur. Ljóskeri með sel- lýsi til hitunar og lýsingar hafði einnig verið koinið fyrir þar. Það var vistlegt þarna inni, því að Ijos-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.