Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 68

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 68
310 Ágúst H. Bjarnason: [ iðunn blaðgræna hefði ekki orðið til og getað breytt sólar- orkunni í efnaorku, gætu ekki, eins og sýnt mun verða, aðrir partar jurtarinnar lifað og þróast; hefði jurtarikið ekki orðið til fyrir þessa starfsem* blaðgrænunnar, væri dýraríkið, sem að minsta kosh í fyrstu lifði mestmegnis á jurtaríkinu, ekki heldur orðið til. Sé grænni jurt haldið í myrkri til langframa, Þa missir hún blaðgrænu sína og bliknar upp. Blað- grænusamböndin veslast þá upp og deyja af því, þau fá ekki að starfa undir áhrifum sólarljóssins- Að vísu dregur jurtin fram lífið enn um stund a orkuforða þeim, sem hún hefir í sér fólginn, en húp vex ekki lengur né dafnar að neinum mun, en reynn' þó að teygja renglur sínar eins langt og hún getur til þess að ná í Ijósið. En sé jurtin aftur sett í birtu* fer blaðgrænan aftur að myndast og þá fer jurtm aftur að lifna við, dafna og þróast. Þetta verður með þeim hætti, að blaðgrænan tekur að sjúga í sig sólar' ljósið og dregur jafnframt að sér kolsýru úr loftinu og vatn úr jörðinni; því næst er súrefnið í kolsýr' unni klofið lrá kolefninu, en kolefnið og vatnsefnið og nokkur hluti súrefnisins síðan notaður til þess að búa til fjöleindir þær eða orkugeyma, sem áður voru nefndir, þangað til jurtin er búin að satna sér næg1' legum orkuforða í líki eggjahvítusambanda, kolvetna og fituefna. Við og við er nú þessum fjöleindunn þessum orkugeymum, hrundið út í plöntusafann, en með honum berast þeir til annara parta jurtarinnaiv sem taka þá upp í vefi sína, en fyrir bragðið fara þá þessir partar að vaxa og þróast, þangað til jurt>n er búin að ná liámarki vaxtar síns og þroska. getur hún af sér ávexti sína; en sjálf verður hun eftir það öðrum lífsverum að bráð með orkuforða sínum eða legst í skaut jarðar og geymir þar orku-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.