Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 4

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 4
82 Helgi Pjeturss: IÐUNN haft góðar ástæður til að læra að meta með þakklæti, alt það sem jeg hefi á einhvern hátt, haft stuðning af í þessari viðleitni minni. Verð jeg þar að telja mjög framarlega, bókmentir spíritista. I þeim bókmentum kemur nefnilega svo oft og greinilega fram, þegar vel er rannsakað og borið saman, að líf það eftir dauðann, sem þar segir frá, er slíkt sem jeg segi, en ekki líkama- laust líf í hinum auða, helkalda geimi milli stjarnanna, eða utan við hina 3 höfuðvegi (dimensiónir) rúmsins. II. Tilgangur greinar þessarar er að benda á nokkur fróðleg dæmi, sem lesa má í ritum spíritista, máli mínu til sönnunar. Fyrsta bindið af mjög frægu riti (The Life beyond the Veil — Lífið handan við huluna) eftir G. Vale Owen, heitir The Lowlands of Heaven, Láglendin í Himnaríki, og er að mestu ritað »ósjálfrátt«, fyrir áhrif frá framliðinni móður höfundarins, sem er enskur prestur, S. 106 (útg. 1926) segir þessi kona frá fljóti í Himna- ríki, allbreiðu, sem rennur yfir sanda, hægum straumi; sér hún börn vera að baða sig í fljótinu. Segir andinn sem er að leiðbeina henni, að 'vatnið í fljóti þessu sje rafmagnað, og börnin (sem fæðst hafa ándvana) sjeu hvött til að baða sig þarna sjer til styrkingar, því að mörg þeirra hafi verið mjög máttlítil þegar þau komu í þennan stað, og þurfi slíkrar næringar með. (Jeg giska á, að það sje rangt, þegar Vale Owen ritar að vatnið sje rafmagnað, og að það sje lífmagn sem átt er við, og mætti þá fremur segja að það sje nærandi að baða sig í því þannig mögnuðu, heldr en ef aðeins væri um rafmagn að ræða; þegar vjer förum að vita meir í nátt- úrufræði á jörðu hjer, munu þessháttar böð í lífmögn-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.