Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 5
IÐUNN
Um annað líf.
83
uðu vatni, verða mikið notuð). Konan kveðst nú hafa
látið í ljósi undrun sína, er hún sá þetta, og leiðbein-
andinn segir þá þessi fróðlegu orð: Þú veist að þó að
likamir okkar hjerna, sjeu ekki af holdi og blóði gerðir
(material flesh and blood) þá eru þeir þjettir og áþreif-
anlegir. — Orðin um að líkamirnir í öðru lífi sjeu ekki
af holdi og blóði, eru náttúrlega frá Vale Owen sjálfum;
leiðbeinandinn er einmitt að fá hina framliðnu konu til
að átta sig á því, að framliðnir sjeu líkamlegar verur,
og ekki eingöngu andlegar, og hann segir ennfremur:
Þessir smáu andar eru að byrja að þroskast, og þurfa
líkamlegrar næringar til að hjálpa sjer áleiðis.
Konan heldur síðan áfram: Vissulega var jeg sein að
skilja alt það sem liggur í þessum orðum sem jeg hefi
notað áður, (að í öðru lífi sje um að ræða) jörð, sem
fullkomin er orðin. ]eg er hrædd um að mörgum ykkar
muni hnykkja við, þegar þið komið hingað yfirum, og
sjáið hversu allir hlutir eru hjer náttúrlegir, þó að fegri
sjeu en á jörðunni. Það eru svo margir, sem búast við
að finna, þegar þeir koma hjer yfirum, einhvern óákveð-
inn skuggaheim, sem sje á allan hugsanlegan hátt, ólík-
ur jörðinni. Hugsaðu um það með góðri greind, hvaða
gagn gætum vjer haft af slíkum heimi? Þar gæti ekki
verið um neinar samfeldar framfarir að ræða fyrir oss,
heldur feiknarlegt stökk, og guð fer ekki þannig að.
Þegar vjer komum hjer fyrst (eftir dauðann), er að
vísu alt frábrugðið því sem var, meðan vjer lifðum á
jörðinni, en þó er munurinn ekki svo mikill, að vjer
verðum orðlans yfir því hvað alt sje ókunnuglegt. Og þeir
sem ekki hefir verið í framfarahugur, koma eftir dauð-
ann fram á þeim stöðum sem eru svo líkir jörðinni, að
þeir sjá engan mun.