Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 7

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 7
IÐUNN Ofl og ábyrgð i. Um sannleiksást og sanngirni. Sigurður Nordal prófessor gerir þrásinnis í ritgerð sinni í Iðunni, sem hann nefnir »Heilindi«, mikið úr því, hvað eg fari hörðum höndum um sig og sýni sér litla vægð, í ritgerð minni »Kristur eða Þór«. Eg minn- ist dálítið á það síðar. En eg get þess nú þegar í byrj- uninni, af því að eg er í vanda staddur. Eg hafði ekki búist við því, að þessi Asatrúarmaður, sem tignar svo mjög víkingslundina og trúir á blóðugan guð, mundi bera sár sín svo illa. Eg finn til þess, að honum muni þykja það harðneskja að ýfa sárin og dýpka þau, í stað þess að fægja þau og græða. En hann neyðir mig sjálfur til þess, mjög á móti vilja mínum. Eg verð að lýsa yfir því, að hann fer með bláber ósann- indi um mig í þessari síðustu ritgerð sinni — ósannindi, sem hann hefði átt auðvelt með að varast, ef sannleiksástin hefði verið svo rík, að hánn hefði viljað hafa fyrir því að afla sér þeirrar vitneskju, sem til þess þurfti að hysgja sér það að fara með rétt mál. Hann fullyrðir, að eg hafi komist út á það »gönuskeið« að halda tillög- unni um það, að mér yrði veitt Nobelsverðlaunin, svo mjög á loft m. a. í dönskum blöðum, þvert ofan í venju annara rithöfunda, sem eins stendur á fyrir, að það hafi sviðið mér sárar en ella myndi, þegar eg hafi ekki komið til álita. Alt er þetta tilhæfulaus ósannindi. Eg hefi ekki átt

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.