Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 9

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 9
IÐUNN Öfl og ábyrgð. 87 Eftir þetta fór málið að vekja athygli á Norðurlönd- um og ýms blöð mintust á það. Eins og eg hefi þegar tekið fram, átti eg engan þátt í því, beinan né óbeinan, og það var ekki á mínu valdi að ráða neitt við það. Eg kem þá að þeirri umkvörtun S. N., hvað eg sýni honum litla vægð, og fyrirgefi honum ekki. Honum felst svo mikið um þetta, að hann telur það eina af ástæð- unum til þess að mannkynið eigi að losa sig við æðstu hugsjónirnar, sem það hefir eignast, af því að það sé bersýnilegt, að mennirnir lifi ekki eftir þeim. Þetta eiga að vera ®heilindi«. Og heilindin eru það, sem oss ríður mest á. Eg ætla ekki að fara að ræða hér þá skemtilegu til- lögu, að vér flýtum oss að losna við fegurstu hugsjónirnar, sem vér höfum eignast á siðferðilega sviðinu. En eg ætla að benda á það fyrst, að S. N. veit ekkert og getur ekkert vitað um minn fyrirgefningarhug, né skort á hon- um. Hann ætti að temja sér þá list að fullyrða ekki annað en það, sem hann veit. Hann veit ekkert um það, hvort eg er þess albúinn eða ekki að rétta hon- um bróðurhönd, hvenær sem hann óskar þess. En eg skil ekki fyrirgefningarskylduna svo, að hún eigi að sjálfsögðu að gera menn að flónum, svo að þeir sjái ekki, hvað við þeim horfir. Ekki skil eg hana heldur svo, að hún eigi að gera oss að ræflum, aftra mönnum frá því að segja sannleikann, hver sem í hlut á, ef sá sannleikur skiftir töluverðu máli. Sérstaklega finnur S. N. mér það til foráttu í þessu sambandi, að eg segi í ritgerð minni »Kristur eða Þór«, að hann »reyni að breiða svikablæju falsaðrar sann- girni og óhlutdrægni yfir það, sem hann er að halda að lesendunum*. Þessi ummæli mín eru, eftir því sem eg lít á, ekki eingöngu sannleikur. Þau eru líka sann-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.