Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 30

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 30
108 Einar H. Kvaran: IÐUNN búiö sér það. . . . Menn sjá hér afleiðingarnar af starfi sínu f lífinu, hugsunum og gjörðum. Þið uppskerið hér það, sem þið hafið sáð til. Og þú mátt ekki gera þér í hugarlund, að lögmálið sé óstrangara hér en hjá ykkur. . . . Þið gerið ykkur ekki grein fyrir hinum stórkostlega óguðleik syndarinnar, fyr en þið sjáið af- leiðingar hennar. Og á jörðunni dyljast þær oft. Hér birtast þær. Þið sjáið, hvað þið hafið verið að gera. Og oft er sú sjón skelfi- leg. Og eins og þeir, sem hafa elskað, hitta ástvini sfna, sem þeir hafa unnað, eins er um þá, sem hafa hatað, eða gert mönnum tjón, eða vanrækt þá, að þeir hitta hérna megin þá, sem þeir hafa breytt illa við; og það þarf ekki neinar pyntingarsvipur til þess að refsa syndaranum. Þá þarf ekki annað en kunngjöra honum þetta: Líttu á handaverk þín. Þelta hefir þú gert úr mér. [Dréf jjúlíu]. En jafnframt þessum frásögnum og kenningum um botnlausa vansælu sem afleiðing af því, að illa hefir ver- ið farið með þetta líf, eru tvö atriði, sem stöðugt er lögð hin mesta áherzla á. Annað er það, að öll þessi ófarsæld, sem mennirnir geta ratað í eftir andlátið, er ekki fyrst og fremst refsing. Hún er auðvitað óhjákvæmileg afleiðing af því að sið- ferðislögmál alheimsins, sem er kærleikur, hefir verið' rofið. En hún er jafnframt nýtt tækifæri, sem mannin- inum er gefið, til þess að sjá að sér. Og engin þjáning er á hann lögð, sem ekki getur snúist upp í fögnuð.' Það er undir honum sjálfum komið. Vér getum spurt, hvernig fari að lokum, ef maðurinn lætur sér aldrei segj- ast. Vér vitum ekkert um það. En hitt er víst, að sú vitneskja, sem talin er hafa fengist úr öðrum heimi, gerir yfirleitt ekki ráð fyrir, að slíkt geti komið fyrir. Þar er reynslan, sú er frá er skýrt, þessi, að með framhaldandi brotum gegn siðferðislögmálinu verði vansælan að lokum svo mögnuð, að maðurinn fái ekki staðist hana, hve mikil sem þverúðin kann að vera. Þá lítur hann aftur til frumlindar alheimsins. Þá hefir hann fengið þá reynslu, og honum getur hún aldrei úr minni liðið, að streitan

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.