Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 41

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 41
IÐUNN Knut Hamsun. 119 enginn styrkti hann. En hann var heldur enginn þurfa- maður —: ungur og sterkur! Hann leitaði sér fræðslu og vann jafnframt eins og víkingur: var sjómaður, vegagerðarmaður, skógarhöggs- maður. En skáldinu varð lítið ágengt. Nokkur ár dvaldi hann í Osló og freistaði þar höfundargæfu sinnar með ýmsu móti, skrifaði í blöð og hélt fyrirlestra um skáld- skap og fögur efni, en hann vann ekki á. Það er vant að segja, hvort það var sök sjálfs hans, eða deyfð og kæruleysi lýðsins gagnvart því, sem nýtt er og ekki hefir enn fengið á sig snið einhverrar hefðar. Vígreifur gekk hann til þessarar baráttu, og hann slapp að eins með lífi frá henni — til Vesturheims, veg allra skip- brotsmanna og hinna mörgu vanhlutamanna, sem eru of stórlátir til þess að vilja lúta að litlu til þess að öðlast mikið — og bera svo ekkert úr býtum. Nú — hann hafði beðið skipbrot og farið varhluta, en hann bjargaði samt miklu: trúnni á sjálfan sig, list sína — sigur að lokum. Þegar vestur kom, tók hið sama við honum, öll hugs- anleg störf, kynstrin öll af hinum margvíslegustu áhrif- um — reynslu af allskonar lífsháttum og allskonar mönnum: gullvæg reynsla en dýrkeypt. Myndir af þessu lífi er að finna í smásögum hans — skýrar myndir og táknandi, en nokkurn veginn eins langt og unt er frá því að sýna skáldlegt hugsjónalíf, svo sem mönnum er tamast að hugsa sér það. í öllu þessu átti hann þátt. En hann varð þó hvergi verulega viðbundinn —: Fyrir- lesari í Minneapolis, sem tætti sundur með hvössu háði og einstakri orðsnild alla hluti helga og sýkna milli himins og jarðar — fyrir 25 cent! Sporvagnsstjóri í Chicago. Bóndi á preríunni — flakkari í þokkabót. Honum var þó ekki ágengt. Þetta eirðarlausa líf var

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.