Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 48

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 48
126 Þorkell Jóhannesson: IDUNN sífeld ráðgáta og undrunarefni þeim mönnum, er safna sér réttlætis umfram aðra af verkum sínum, eftir bestu samvisku, en hafa þó löngum alt aðra sögu að segja um árangurinn af sínu stranga æfistarfi. Hann veit líka af þessu. »Vi herrer neurenestikere«, segir hann í sorg- blöndnum afsökunarróm, »vi er dárlige mennesker og til nogenslags dyr duer vi heller ikke!« Það er rétt eftir reikunarmanninum að láta sinn hlut verri en efni eru raunar til. Ekkert er fjær skapi hans en það, að halda sjálfum sér fram til jafns við aðra, á þeirra kostnað: til þess er hann langt of næmur fyrir kjörum þeirra, sem vanhluta fara og bágt eiga. Oham- ingja annara tekur hann fastatökum svo hann gleymir sínum eiginn hag, en sjálfur er hann vígður ógæfunni til dauða, vegna þess að samúðin er of ríkur þáttur í sálarlífi hans til þess að geta sett sér eðlileg og nauð- synleg takmörk: Hver fær þurausið hafsjó harmanna eða þaggað stun allrar skepnu? — Það er engin hversdagsmannúð, sem knýr skáldið í Hungri til þess að gefa öðrum sinn síðasta eyri þegar hann sjálfur er þrotinn öllum vörnum, eða hneigir hug Nagels til fyrir- litnustu fátæklinganna í sjávarþorpinu: Mínútunnar og fröken Gude. Það er innborin nauðsyn sálar, sem í 'raun og sannleika tekur á sig synd og sorg alls heimsins — en kiknar að sjálfsögðu undir öllu saman. Þegar reik- unarmaðurinn leitar einveru skóganna, þá er hann að leita þreyttri sál sinni hins síðasta og eina athvarfs, er veitir nokkuð fullkomna hvíld og fró. Og hér finnur hann hamingju hrakningsæfi sinnar í innilegu samhorfi við líf náttúrunnar. Hamingju — órofna af þjáningum og skammsýni meðbræðra sinna, mannanna, og þó orpna angurblæ dýrkeyptrar reynslu, brostinna vona —. Ástalýsingar Hamsuns eru þessu náskyldar. Ástin milli

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.