Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 64

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 64
142 Tryggvi Sveinbjörnsson: Bandaríkjanna, varp ljómi sigursins nýjum og mikilfeng- legum blæ á nafn hans. Bandaríkin gengu heil af víg- vellinum og höfðu auk þess bundið samherja sína bönd- um þakklætis — og skulda. Hinn ótvíræði sigur, sem Bandaríkin unnu, lyfti Wilson um stund skör hærra en forustumönnum hinna sigurvegaranna. Hann miklaðist ekki, heldur ásetti sjer að láta allan heiminn, einnig þá, sem halloka fóru, njóta góðs af sigri sínum. Nú skyldu alheimssamtök stofnuð um það, að fyrrast styrjaldir og efla andlega og efnalega samvinnu meðal þjóðanna. Allir, bæði þeir, sem sjálfir höfðu borist á holskeflum stríðs- ins, og eins hinir, sem aðeins höfðu hlustað á blóðdyn þeirra í fjarska, litu fagnaðaraugum og eftirvæntingar móti hinum komandi degi. Boðskapur Wilsons bar blæ af aldagömlum draumi mannkynsins, drauminum um þús- undáraríkið. Engin von á að rætast að fullu. Hugsjón Wilsons varð að lúta þessu lögmáli, og ef til vill má það til sanns vegar færa, að áform hans að sumu leyti hafi verið bygð á sandi og ekki verið reyst á hömrum reynsl- unnar. A hinn bóginn ber þeim, er kalla Wilson skýja- glóp, að gæta þess, að grípa þurfti til sjerstakra úrræða, ef duga skyldi, og ennfremur er það eðlilegt, að jafn háleit hugsjón og sú, að breyta bræðrastríði í bræðralag, beri skynsemina ofurliði á einhverju sviði. I sjálfgleym- ingi hins mikilfenglega áforms yfirsást Wilson, að menn- irnir munu vera sjálfum sjer líkir, hver undur sem kunna að verða á vegi þeirra. Enginn þorir að verða fyrstur til að kasta skildi sínum og slíðra sverðið. í frumriti Wilsons að sáttmála Alþjóðabandalagsins ætlaðist hann til að spornað yrði við styrjöldum á þann veg, að allir meðlimir bandalagsins undantekningarlaust ættu að hefj- ast handa gegn friðrofum. Samtökin milli þjóðanna, Al-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.