Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 71

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 71
ÍÐUNN Alþjóðabandalagið. 149 Verkamálaskrifstofan. Skrifstofa þessi hefir sjer- stöðu innan bandalagsins. Alþjóðabandalagið hefir engin áhrif á fyrirkomulag þessarar stofnunar, og skiftir sjer ekki af hvað hún tekur sjer fyrir hendur. Hún stendur þó í tvennum skilningi í sambandi við Alþjóðabandalagið: Hvert ríki, sem er eða gerist meðlimur þess, verður af sjálfu sjer meðlimur verkamálaskrifstofunnar, og banda- lagið annast fjárhag hennar. Kostnaðurinn við starfrækslu hennar er því sem næst J/3 af öllum kostnaði við banda- lagið. Um verkamálaskrifstofuna má segja það sama og um ýmsar deildir og skrifstofur innan vjebanda Al- þjóðabandalagsins, að þær eru eldri en bandalagið sjálft, þótt þær væru með öðru sniði fyr meir. Nálægt 1880 spurðist Sviss fyrir hjá ýmsum ríkjum, hvort ekki mundi tímabært að koma á samvinnu milli ríkjanna í verka- málalöggjöf. Tilgangur svissnesku stjórnarinnar var sá, að kalla skyldi saman alþjóðafund um þetta mál. Vilhjálmur Þýzkalandskeisari kvaddi svo að óvörum til svona fund- ar árið 1890, án þess að hafa ráðgast um það við aðra. A fundi þessum gerðist ekkert markvert. Næsta sporið í áttina var skrifstofa, sem komið var á fót í Basel og sem starfaði að umbótum á verkamálalöggjöf. Skrifstof- an var miðstöð þesskonar tilrauna alt þangað til styrj- öldin byrjaði. Stríðið ruddi um koll öllum reglum, sem settar höfðu verið um verkamál. t>egar semja átti frið- inn, gerðu verkamannafjelög í ýmsum löndum þá kröfu, að friðurinn skyldi ekki eingöngu tryggja þeim rjettindi þeirra aftur, heldur og einnig, að alþjóðasamtök skyldu 2erð um endurskoðun og endurbætur þeirra kjara, sem verkamenn til þessa tíma höfðu átt við að búa. Á frið- arfundinum settu ríkin sjerstaka nefnd til að íhuga þetta. Formaður nefndarinnar var hinn þekti foringi amerísku verkamannafélaganna, Samue! Compers, sem nú er dá-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.