Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 75

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 75
IÐUNN Alþjóðaoandalagið. 153 friðarsamningunum, fái íullt sjálfstæði, þegar þau hafa náð þeim þroska, er nægilegur þykir. Umboðsvaldið er því tímabundin aðstoð en engin undirokun, og þeir, sem með völdin fara, mega ekki nota þau sér til hags- muna. Þvert á móii er umboðsvaldið kostnaðarsamt mjög. Fjármál. Glæsilegasti sigurinn, sem Alþbl. hefir unnið á sviði fjármála, er viðreisn Austurríkis. Friðar- samningarnir tóku ómjúkt á þessu ríki, og af því leiddi, að það komst í sárustu örbyrgð eftir styrjöldina, enda sást brátt, hver örlög biðu þess, ef ekki væri hlaupið undir bagga með því. Lán var tekið á lán ofan, svo að segja alt var selt eða sett að veði, sem nokkurt verð- mæti hafði, en alt kom fyrir ekki. A árunum 1919—1922 hurfu 2 miljarðar gullkróna í hyl vaxandi skulda. At- vinnuleysi, sultur og hverskonar neyð gerði þjóðina örvílnaða og þróttlausa. Ríkið virtist dæmt til dauða og glötunar. A síðustu stundu kom bjargvætturinn, Al- þjóðabandalagið. Það gekst fyrir nýju alþjóðaláni. Meira var boðið en beðið var urn — þefta traust báru menn til bandalagsins. Á árunum 1922—1924 var Austurríki komið á laggirnar með aðstoð nýja lánsins, 650 mil- jónir gullkróna, undir eftirliti bandalagsins og samkvæmt skipulagi, er það setti. Austurríki virðist nú nokkurn- veginn borgið. Framleiðslan er komin í fremur gott horf og gjaldmiðill tryggur. Ungverjaland hefir Alþjóðabandalagið stutt á líkan hátt og Austurríki, og ennfremur hefir það komið lagi á fjármál Albaníu. Sættir, sem komið hefir verið á. Dómstóll Alþbl. hefir skorið úr 11 málum er vísað hefir verið til hans. Öll voru málin flókin og eigi verður í fljótu bragði sjeð, hvernig þeim hefði orðið til lykta leitt án dómstólsins. 2 dæmi skulu nefnd. Hið fyrra snertir eitt

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.