Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Qupperneq 78
156
Tryggvi Sveinbjörnsson:
iðunn;
rannsaka málið iil hlýtar. Gríska sfjórnin, sem enga sök
átti á málinu, hafnaði sumum af kröfum Mussolinis. I
ógnunarskyni hertóku Italir eyjuna Korfu um stundar-
sakir. Eyjarskeggjar gerðu enga mótspyrnu, en ítalir
skufu engu að síður nokkrum fallbyssuskotum á eyjuna
og drápu 15 menn. Alþjóðabandalaginu veittist afar
erfitt að jafna þetta mál. Á fyrri tímum mundi misklíðin
ótvírætt hafa valdið styrjöld (Morðið í Serajevo hleypti
heimsstyrjöldinni miklu af stað). Um síðir tókst þó Al-
þjóðabandalaginu að koma sættum á. Grikkir greiddu
skaðabæturnar og uppfyltu að mestu aðrar kröfur ítala.
Memel. Friðarsamningarnir sviftu Þjóðverja yfirráð-
um yfir borg þessari, er stendur við ána Njemen. Hið
nýja ríki, Lithauen, fjekk yfirráðin yfir borginni og um-
hverfi hennar. Þó með þeim skilyrðum, að hún rjeði
sjer að mestu leyti sjálf. Pólverjar kunnu því illa, að
Lithauen fengi tangarhald á borginni, kváðu sjer lífs-
nauðsyn að fá frjálsa flutninga á ánni og helst ýms þar-
aðlútandi sjerrjettindi. Um þetta urðu harðar deilur.
Lithauen hjelt í við Pólverja vegna fjandskapar út af
Vilnasvæðinu, sem Pólverjar hrifsuðu undir sig, en sem
,í rauninni er lithauiskt, og nú að nokkru leyti sjálfstætt.
Þeir þvertóku fyrir, að Pólverjar fengju sjerrjettindi á
ánni, og svo fór, að Pólverjar urðu að sætta sig við
sömu kjör og aðrir.
Mosulmálið. Þegar Bandamenn sömdu frið við
Tyrki í Lausanne, kröfðust Tyrkir yfirráða yfir Mosul-
hjeraðinu, en frá því að friðarsamningarnir voru gerðir,
hafði konungsríkið Irak (Mesopotamía), sem er undir
yfirráðum Breta, haft yfirráðin yfir Mosul. Bretar neit-
uðu kröfum Tyrkja. Otal tilraunir voru gerðar til þess-
að jafna málið, en alt kom fyrir ekki. Báðir höfðu að-
ilar lofað að hlýðnast úrskurði ráðsins, en þegar til