Kirkjuritið - 01.07.1935, Blaðsíða 9
Kirkjuritið.
HINN ALMENNI KIRKJUFUNDUR.
IT A kirkjufundinum síðastliðið ár höfðu þessir
, , . menn verið kosnir i undirbúningsnefnd undir
buningur. nœsta almenna kirkjufund:
Asmundur Guðmundsson prófessor, Reykjavík,
séra Friðrik Rafnar, Akureyri,
Gísli Sveinsson sýslumaður, Vík,
Ólafur B. Björnsson kirkjuráðsmaður, Akranesi,
Sigurbjörn .4. Gíslason ritstjóri, Reykjavik,
séra Sigurgeir Sigurðsson prófastur, Isafirði,
Valdimar Snævarr skólastjóri, Neskaupstað.
Formaður nefndarinnar var kosinn Gísli Sveinsson, en ritari
Ásmundur Guðmundsson.
Nefndarmennirnir störfuðu í samráði við stjórn Prestafélags
íslands. Þeir héldu allmarga fundi, rituðu bréf til presta, sókn-
arnefnda, Hallgrimsnefnda og safnaðarfulltrúa um land alt,
sömdu við skipafjelög og bifreiðastöðvar um afslátt á fargjöld-
um, sáu um gististaði handa fulltrúunum, er þess óskuðu, og
önnuðust yfirleitt allan undirbúning undir fundinn. Var það
mikið starf, en stórum léttara fyrir það, hversu fljótt og vel
allir brugðust við, sem til var leitað um aðstoð.
Þegar nokkuð tók að líða að fundarhöldum,
varð það ljóst, að fundarsóknin myndi verða
mikil, því að daglega bárust undirbúningsnefndinni tilkynning-
ar um þátttöku. Þeir, sem lengst áttu að, urðu að sæta óhent-
ugum skipaferðum og koma viku fyrir fundinn. Dró það, sem
vonlegt var, mjög úr fundarsókn Austfirðinga, en sumir þeirra
settu þó ekki fyrir sig þriggja vikna ferðalag. Mörg fleiri dæmi
mætti nefna um framúrskarandi áhuga, þótt þau verði ekki
talin hér. Alls sóttu fundinn (il prestvígðir menn og 130 fulltrúar
leikmanna víðsvegar af landinu, svo að slíkur fundur mun aldrei
áður hafa verið haldinn með þjóðinni. Hlýðir því vel, að Kirkju-
ritið geymi nöfn þeirra allra.
Fundarsókn.
17