Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1935, Side 16

Kirkjuritið - 01.07.1935, Side 16
264 Hinn almenni kirkjufundur. Kirkjuritið. altaf átt lærisveina, er elskuðu hann svo heitt, að þeir fórnuðu Jífi sinu og starfi fyrir hann, við að útbreiða ríki hans meðal mannanna. Margir af þessum lærisveinum verða ódauðlegir. en nöfn enn fleiri eru gleymd og horfin i haf tímanna. Nú á dögum eru lærisveinar hans víðsvegar um heiminn að vinna að því, að boðskapur hans verði máttugri þáttur í lífi þeirrar kyn- slóðar, er nú byggir jörðina. Þeir eru í hverju einasta landi, í hverri sveit og borg, í myrkri og kulda norðursins og í sólskini og yndislegri fergurð miðjarðarlandanna. Alstaðar eru þeir á ferð boðberar hans, sem er líf og ljós mannanna, hins krossfesta og upprisna frelsara. Og hvar sem tekið er á móti boðskap hans í einlægu trausti og trú er eins og birti yfir lífinu. Kærleikur og lífsgleði setjast að völdum, en harðúð og ótti vikja, eins og myrkur fyrir hækkandi sól. Það sem felst á bak við þetta starf, sem nú nær yfir allan heim, er auðvitað sú trú, að ekkert geti frelsað mennina úr þeim viðjum margvíslegra myrkravalda, sem þeir eru feldir í, nema Jesús Kristur og fagnaðarerindi hans. Allir, sem nú á dög- um vilja vinna að vexti kristindómsins í lífi þjóðar sinnar, verða að hafa þá fullkomnu vissu, að einasta eina leiðin til guðsrikis hér á jörðu og annars heims sé sú, sem Jesús boðaði og gekk sjálfur. Hvaða leið getur önnur verið til? Jú, vitanlega hafa ver- iS boðaðar hinar margvíslegustu leiðir, sem mennirnir geti farið eftir og eignast frið, farsæld og fullkomna lífsgleði. Margir hafa reynt þessar leiðir, en oftast orðið fyrir vonbrigðum og þeim svo sárum, að þeir hafa aldrei beðið þess bætur. En fyrir 1900 árum kom Jesús frá Nazaret sem var ljómi Guðs dýrðar og ímynd hans veru, og boðaði fagnaðarerindi. I því flutti hann alt aðra lífsskoðun en menn höfðu gert sér hugmynd um. Aðalefni boðskapar hans var þetta: Guð er til, hann er lierra himins og jarðar og hefir sett öll þau lögrnál, er aldrei breytast. Og mennirnir eru börnin hans, sem honum þykir innilega vænt um, já, hann elskar þá svo heitt, að hann „gaf sinn eingetinn son, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf“. En vilji og eðli Guðs er kærleikur. því á lika lögmálið í lífi mannanna að vera kærleikur. „Alt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skulið þjer þeim gjöra. Elskið óvini yðar, blessið þá sem yður bölva og gjörið þeim gott, er hata yður og ofsækja“. Og hann sagði líka í gleðiboðskap sínum: Mannlífið er aldrei tilgangslaust. Því hefir verið sett á- kveðið markmið. Alt, hið smávægilegasta sem hið stærsta, er við ber á mannsæfinni hér á jörð, á að miða að því að fegra lífið, göfga það og lyfta því á æðra stig fullkomnunarinnar. — Og

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.