Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1935, Page 38

Kirkjuritið - 01.07.1935, Page 38
286 Hinn almenni kirkjufundur. Kirkjuritið, SAMTÖK OG SAMVINNA AÐ KRISTINDÓMSMÁLUM. FRAMSÖGUERINDI ÁSMUNDAR GUÐMUNDSSONAR. Undirbúningsnefnd þessa kirkjufundar var það þegar ljósl, a'ð eitt aðalviðfangsefni hans hlyti að verða umræður um samtök og samvinnu að kristindómsmálum. Enda mætti gjöra ráð fyrir, að fulllrúum þeim, er kæmu, yrði það mikið áhugamál. Og því aðeins hefir fundurinn nokkurt varanlegt gildi, að framkvæmdir fylgi síðan á þessu sviði. Hafið þið nú með þvi að fjölmenna hingað styrkt aðstöðuna til jiess, að samtökum og samvinnu verði komið á. Við frámsögumenn þessa máls höfum skift þannig verkum iíieð okkur, að hvor talar um sinn þátt samtakanna og samvinn- unnar og munum við aðeins halda okkur við höfuðatriðin, er okkur virðast mestu skifta að þessu sinni. En síðar á fundinum hugsum við til að bera fram tillögur í samráði við nefnd, sem mun kosin í málinu. Um þörf samtakanna er ástæðulaust fyrir mig að fara mörg- um orðum. Því að hún mun nokkurn veginn ljós þorra fundar- manna. Kristnilíf þjóðarinnar stendur viða með litlum blóma. Skipulögð árás er hafin gegn því í ræðu og riti og verki. Eru tekin upp gífuryrði þau gegn kristni og kirkju, sem tíðkast nú sumstaðar erlendis, einkum á Rússlandi, og beint gegn kirkju íslands, með fullkomnu skilningsleysi á þvi, að hér eiga þau alls eklci við, þar sem íslenzka kirkjan hefir barist vel fyrir andlegri og verklegri menningu og af alúð leitast við að bæta úr kjörum bágstaddra. Það er jafnvel orðin tízka fyrir mörgum — ekki sízt unguin mönnum því miður — að votta kristni og kirkju lítilsvirðingu. Hefir hver eftir öðrum í blindni, að á- stándið í heiminum nú á dögum sé sönnun um fánýti hennar — í stað þess, að jiað er sönnun liin brýna nauðsyn hennar’ Stjórnmáiaofstækið skipar það rúm i hjörtum margra, er trúin skyidi. Deyfð og áhugaleysi um andleg mál grefur um sig, svo að sjáandi sjá menn ekki og heyrandi heyra þeir hvorki né slcilja. Er nú svo komið, að þjóðin verður að bregðast hart við, ef hún vill fá að halda starfi kirkju sinnar meira en til mála- mynda. Þejsum erfiðleikum öllum verður að taka með djörfung og guðstrausti og einlægri og öruggri samvinnu áhugamanna uni kristindómsmál. Kristur sagði, að .trúin flytti fjöll úr stað, og

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.