Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1935, Page 56

Kirkjuritið - 01.07.1935, Page 56
Hinn abnenni kirkjnfnndur. Kirkjui'itið. 304 imiii í hendur fenginn af postuliiniun, staðfestur með hlóði pisl- urvottanna, gegmdur í hjörtum safnaðanna á þrengingartimum, hreinsaður og fágaður af kirkjuföður vorum Lúther, prédikaður og til eftirhregtnis gildur tekinn af feðrum vorum og mieðrum, og eins og hann lifir enn i dag í söfnuði drottins hér o.g annars- staðar. Þetta er ekki orSagjálfur framborið af hræsni. Það er sann- færing mín og vitnisburður, fra.m borinn í höfuðhelgidómi bjóð- ar minnar. Mcr er vel Ijóst, til hvílíkrar ábyrgðar staðurinn kallar mig, þar sem ég stend nú, En í þessu tilliti er ábyrgðin mér léttbær, þvi að Guð er mér vitni. Fær guðsbarnið í islenzku þjóðarsálinni þessa næringu i fnll- um mæli nú á tímum? Nei; ég þori að segja, að það grætnr, þótt sjaldnast hegrist það, sakir þjóðlífs-hávaðans og þgsjanda dagverknaðarins. En vér skulum gæta vel að ýmsum ytri einkennum, sem eigi fá dulist. Þjóðin er óróleg, óánægð, kviðin, vonlitil og brædd. Hvað veldur? Getur ekki verið, að hún titri af niðurbældum grát- ekka? Má ekki jafnvel greina þungar stunur gegnum uppgerðar- hlátur gelgjuskeiðsins? Er ekki eitthvað bogið við viljastefnu hennar, eitthvert ósamræmi, eitthvert fálm? Og ráða ekki spiltar fýsnir og illar tilhneigingar of.miklu? Hvað veldur? Hvað veld- ur? Að mínu viti og áliti þetta: Kristur hefir ekki verið og er ekki nógu víða og nógu kröftuglega boðaður. Það hefir ekki verið séð nægilega vel fyrir, að vort gróandi þjóðlíf mætti þrosk- ast á guðsríkisbraut — og fengi frið til þess. Þau öfl eru til í þjóðfélaginu, sem vilja færa það út af guðsríkisbrautinni og inn á 'aðrar leiðir. Þau hafa lika að sumu leyti gengið sigrandi af hólmi. Þetta er ofureðlilegt, þegar alls er gætt. Kirkjur hafa á undanförnum tímum verið lagðar niður, prestum fækkað, al- mennar guðsþjónustur strjálast og heimilisguðsþjónustur lagst niður. Og enn er talað um að fækka kirkjulegum starfsmönnum, prestunum, um alt að helmingi. Hvílík fásinna! Nauðsyn núver- andi ástands krefst i sannleika hins gagnstæða. Krefst meira að segja geysilegrar fjölgunar. Svo mikillar fjölgunar, að enginn sé sá klettur í íslandsbygðum, að eigi heyrist þaðan nefnt nafn drottins daglega, ef hann á annað borð fær ómað. Að svo megi sem fyrst verða, er heitasta þrá safnaðarfræðslunnar. Hvað segir kirkjan? Býður hún hana velkomna að verki? Eða: 1) Á ekk- ert að gera? 2) Láta reka á reiðanum? 3) Alt síga á ógæfu- hliðina? 4) Alt arka að auðnu með trú, menningu og siðgæði? Xei, og aftur nei. Guð forði oss frá slíku andvaraleysi.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.