Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1935, Page 59

Kirkjuritið - 01.07.1935, Page 59
Kirkjuritið. Hinn almenni kirkjufundur. 307 Látum reynsluna skera úr. Gerum tilraunir á komanda vetri eða síðla sumars. Einhvern tíma, þegar gott tækifæri býðst, kalla prestarnir þá menn í söfnuðunum saman, er ])eir treysta bezt til að taka þátt í safnaðarfræðsiunni með sér sem fræðendur eða vakninga- menn. Þeir kalla einnig þá menn aðra til viðtals, er þeir vita, að áhuga hafa á málinu. Ásamt prestunum koma þessir menn sér saman um skipulagið, ákveða fræðsluefni, skifta greinum á menn og daga o. s. frv. Við guðsþjónustu safnaðanna gera prestarnir svo grein fyrir málinu og auglýsa fyrstu samkom- una. Færi bezt á að auglýsa, með hvaða efni yrði farið og hver f'lytti erindi. En tilhögun samkomunnnar mætti vera á þá ieið, að á undan og eftir erindinu syngju þátttakendur sálma, sinn sálminn í hvort skiftið. Að loknu erindi gæti verð gott að Ieyfa fyrirspurnir og samtal um efni erindisins. Að lyktum ætti vel við að flytja bæn og syngja sálmsvers. Sönginn má ekki van- rækja. Hann hefir hér sem annarsstaðar ómetanlegt giidi, og þvi frekar sem fleiri syngja. Helzt ættu allir viðstaddir að syngja, einraddað með undirspili. Spá mín er sú, að víða i prestaköllum landsins yrði þessari nýbreytni vel tekið. Lesflokkar ættu að öllum líkindum skjótt að myndast eða að minsta kosti fastur áheyrendahópur, vin- átlubönd að knýtast, samkend að vakna og prestar að mæta vinarhóp, hvenær sem þeir kæmu í sóknir sínar, og hefði hóp- urinn þá undirbúið komu þeirra eftir beztu getu. Sennilega liði ekki á löngu, að hvar sem safnaðarfræðslan næði einhverjum þroska hyrfi sá aumingjaskapur að bjóða nokkrum prestí upp á kaldar kirkjur og óvistlegar og illan og lítinn kirkjusöngj Eftir messu flytti svo prestur eða einhver annar erindi, og að því. loknu skiluðu lesflokkarnir úrlausnum sínum, fengjú lleið- réttingar og leiðbeiningar og ný verkefni. Verkefniri fjölritaði presturinn eðd leiðbeinandinn. Til þeirra hluta má vel komast af með ódýran hektógraf, sem hver maður getur sjálfur búið til, ef hann hefir efni og uppskrift. Við og við sendi prestur- inn út smáávörp inn á hvert heimili í sókninni, og önnuðust þá flokkarnir dreifinguna; Eg hugsa mér jafnvel, að sumstaðar gæfi prestur og safnaðarfræðendur út fjölritað blað — safnaðarblað Þannig gæti myndast lifandi samband milli prests og safnaðar — og hver er sá prestur, er eigi óskar sér þess? Kæru bræður. Ég hefi hér dregið upp glæsilega mynd, en ég vona, að hún geti reynzt sönnu næst, a. m. k. þegar bezt tækist. Að draga upp myjid af ástandinu, þegar verst tækist, er alóþarft. Vér þekkjum ástandið í aðgerðalausum, köldum og 20*

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.