Kirkjuritið - 01.07.1935, Page 61
Hinn almenni kirkjufundur. 309
Þriðji aðalliður á dagskrá fundarins var önnur
mál, sem upp yrðu borin. Mátti búast við ýms-
um siikum málum, enda þótt undirbúningsnefndinni hefði ekki
verið skýrt frá þeim fyrir fundinn. Var þvi allsherjarnefndin
kósin í upphafi fundarins, sem þeir menn skyldu snúa sér til, er
hefðu mál eða tillögur fram að bera. Þessir menn voru kosnir
í nefndina:
Séra Guðbrandur Björnsson.
Ólafur B. Björnsson.
Sigurður P. Sívertsen.
Tillögur í málunum voru bornar upp siðasta fundardaginn,
en þá var orðinn mjög naumur timi til þess að reifa málin og
ræða þær. Bættust þó nokkurin i ræðumannahópinn,, svo sem
séra Helgi Hjálmarsson, Jón Helgason fulltr. fyrir Beruncssókn
og Steini Guðmundsson fullt'r. fyrir Reynivallasókn.
Þessar tillögur voru samþyktar í einu hljóði:
1. „Hinn almenni kirkjufundur í Reykjavík skorar á presta
landsins að vinna að bindindisstarfsemi i sóknum sínum“.
2. „Fundurinn skorar á kirkjustjórnina að auglýsa Þingvalla-
prestakall i Árnesprófastsdæmi laust til umsóknar nú þegar“.
3. „Kirkjufundurinn beinir þeirri ósk til Kirkjuráðs, að það
hlutist til um, að fyllri kröfur séu gerðar til mentunar kirkju-
organleikara, en nú tíðkast, og jafnframt sé þeim séð fyrir þókn-
un fyrir starfa sinn, er samsvari hinu þýðingarmikla starfi
þeirra í þjónustu kirkju og kristnihalds“.
4. „Hinn almenni kirkjufundur i Reykjavik skorar á fræðslu-
málastjórnina að sjá um, að prestar skipi sem viðast formanns-
sæti i skólanefndum landsins".
5. „Fundurinn telur æskilegt, að prestarnir, hver í sínu kalli,
heimsæki barnaskólana og fylgist með kristindómsfræðslunni,
svo sem þeir hafa tíma til. — Ennfremur væri æskilegt, að
prestar hafi sem oftast fundi með kennurum i kristnum fræðum
eða samræður við þá um þau mál“.
6. „Fundurinn telur brýnustu þörf á hæli til hjálpar og við-
reisnar ofdrykkjumönnum og skorar á rikisstjórn og Alþingi
að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess, að slíkt hæli verði
reist eins fljótt og unt er“.
Að lokum báru Filippus Ámundason og Jón Arason fulltrúar
fyrir Frikirkjusöfn. Rvík fram þessa tillögu:
„í sambandi við fram komnar tillögur lýsir fundurinn því yfir,
að hann telur óhæfilegt, að aðrir en þeir, sem hafa kristilega
lífskoðun, gegni barnakennara- eða prestsstörfuin, og heitir á
söfnuði landsins að þola slíkt ekki hjá sér“.
Kirkjuritið.
önnur mál.