Kirkjuritið - 01.07.1935, Qupperneq 62
310
Hinn almenni kirkjufundur. Kirkjuritið.
Tillagan hafði ekki farið um hendur allsherjarnefndar, og
vildu því sumir, að hún yrði ekki borin undir atkvæði. Þó varð
það úr, og greiddi meiri hluti fundarmanna atkvæði með henni.
Undirbúnings- Nefndin, sem hafði undirbúið þennan kirkju-
nefnd undir fund, var í einu hljóði endurkosin til næstu
næsta fund. tveggja ára, og að auk þessir varamenn:
Séra Björn Magnússon prófastur, Borg.
Frímann Ólafsson kaupmaður, Reykjavík.
Séra Guðbrandur Magnússon prófastur, Hofsós.
Séra Halldór Ivolbeins, Stað i Súgandafirði.
Séra Jakob Einarsson prófastur, Hofi.
Sigfús Sigurhjartarson kennari, Reykjavik.
Sigurður Halldórsson trésmíðameistari, Reykjavík.
Bróðurandi ríkti á fundinum, og varð salurinn
^“?"ar,egar í K. F. U. M. þessa daga eins og heimili fund-
viotoKur. armanna, sem þeim verður lengi ljúft að minn-
ast. Að því studdi einnig sameiginleg kaffidrykkja, sem fór þar
fram á mánudag og þriðjudag. Veitti kirkjunefnd og sóknar-
nefnd Dómkirkjusafnaðarins fyrri daginn, og var þá viðstödd
skáldkonan frú Jakobina Johnson, sem flutti fundarmönnum
kveðjur vestan um haf og mælti bæði í bundnu máli og óbundnu.
Var henni fagnað hið bezta. En síðar á fundinum voru sendar
hróðurkveðjur og blessunaróskir til 50. kirkjuþings íslendinga
i Vesturheimi. Seinni daginn veitti Kvenfélag Frikirkjusafnað-
arins. Voru þessar veitingar hvorartveggju, eins og vænta mátti,
af framúrskarandi rausn og prýði.
Guðræknis-
stundir.
Eftir hvert fundarhlé var venjulega sunginn
sálmur, áður en fundurinn hófst að nýju. Einn-
ig lauk fundinum á kvöldin með sálmasöng.
Morgunbænir voru haldnar. Séra Friðrik Hallgrímsson las á
mánudagsmorguninn Jóh. 15 og bað hænar, en Knud Ziemsen
Ias á þriðjudagsmorgun Jóh. 3, 10; 14, 1—7 og Matt. 28, 20.
flutti hann því næst ræðu og bað bænar að lokum. Þegar leið
að fundarslitum, mæltu nokkurir ástúðlegum hvatningarorðum
og kveðjuorðum til fundarmanna. Vóru það þeir séra Halldór
Kolbeins, séra Halldór Jónsson, séra Guðbrandur Björnsson, séra
Árni Sigurðsson, Sigurbjörn Á. Gíslason, séra Friðrik Rafnar,
séra Ófeigur Vigfússon og Gísli Sveinsson. Síðast las Sigurður
P. Sívertsen vigslubiskup Op. Jóh. 3, 20—22, talaði hann nokkur
orð út frá versunum og flutti bæn. Sálmurinn ,,Ég heyrði Jesú
himneskt orð“ var sunginn og síðast versið „Son Guðs ertu
með sanni“.